top of page
Kosningar 2023-4.png
IMG_5594.JPG

RÖSKVA ER

stúdentahreyfing sem tekur virkan þátt í hagsmunabaráttu stúdenta.

Röskva var stofnuð árið 1988 og hefur alla tíð borið hag stúdenta fyrir brjósti. Röskva er samtök félagshyggjufólks innan Háskóla Íslands og grundvallarstefna Röskvu hefur alltaf verið sú sama; jafn réttur til náms.

Röskva á fulltrúa í Stúdentaráði, Háskólaþingi og í Háskólaráði Háskóla Íslands.

Röskva telur að hlutverk stúdentaráðs eigi að vera þrýstiafl, sérstaklega á ríkisstjórnina. Það er vegna þess að hagsmunabarátta stúdenta takmarkast ekki við Háskóla Íslands, heldur teygir hún anga sína út í samfélagið allt. Innan Háskóla Íslands beitir Röskva sér fyrir þeim málefnum sem betur mættu fara.

Þar má helst nefna baráttu gegn ólögmætri hækkun skrásetningargjalda, tryggja stúdentum rétt til atvinnuleysisbóta, auka úrræði í geðheilbrigðismálum, bæta lánasjóðskerfið og að jafnræðis sé gætt í hvívetna innan háskólasamfélagsins.

IMG_5596.JPG

Jafnrétti

IMG_5626.JPG

Róttækni

IMG_5581.JPG

Heiðarleiki

Hvað er Röskva?

Hvað er Röskva?

bottom of page