Röskva in english!

31. 01. 2011 English, Fréttir

Röskva wants to make life easier for foreign students at the University. The number of foreign students at the University of Iceland has been growing steadily over the years. In addition to the common interests they share with Icelandic students there are a number of things that affect foreign students specifically. These are matters such [...]

Raunsæ markmið – sjálfsagðar breytingar

29. 01. 2011 Fréttir, Greinar, Myndafréttir
Raunsæ markmið – sjálfsagðar breytingar

Upptökupróf – við viljum þau öll. Þegar líða fór á haustönn fór að spyrjast út um háskólann að upptökupróf myndu ekki vera haldin þessa önnina. Þetta eru upplýsingar sem hefðu átt að vera nemendum ljósar í byrjun haustannar, en lítið  fór fyrir þeim. Stúdentaráð vakti síðan athygli nemenda á þessu máli og benti á að [...]

Meiri völd til stúdenta

24. 01. 2011 Fréttir, Greinar, Myndafréttir
Meiri völd til stúdenta

Væri ekki lífið sem stúdent skemmtilegra og auðveldara ef samfélagið okkar væri alvöru stúdentasamfélag? Samfélag þar sem rödd stúdenta hefur raunveruleg áhrif og við upplifum okkur sem hluta af heild. Ekki misskilja, Stúdentaráð gegnir mjög mikilvægu hlutverki, hefur áhrif og er öflugt þrýstiafl. En ímyndið ykkur ef Stúdentaráð hefði enn meiri áhrif og raunverulegt ákvörðunarvald í málefnum er varða stúdenta og stúdentar fylktu sér á bakvið ráðið og þá hagsmunabaráttu sem fer þar fram.

Framboðslistar Röskvu til Háskólaþings og Stúdentaráðs

15. 01. 2011 Frambjóðendur, Fréttir, Myndafréttir
Framboðslistar Röskvu til Háskólaþings og Stúdentaráðs

Framboðslisti Röskvu til Háskólaþings árið 2011 1.sæti Brynja Huld Óskarsdóttir – lífefnafræði/lyfjafræði 2.sæti Sindri Rafn Þrastarson – lögfræði 3.sæti Kristjana Björg Reynisdóttir – kennaradeild 4.sæti Þórarinn Freyr Grettisson – sálfræði 5.sæti Sandra Rán Ásgrímsdóttir – umhverfis- og byggingarverkfræði 6.sæti Vilhjálmur Bergmann Bragason – enska 7.sæti Auður Anna Aradóttir – lífefnafræði 8.sæti Gísli Logi Logason – [...]

Föstudagurinn 14.janúar – Handbolti og listakynning Röskvu

12. 01. 2011 Fréttir, Greinar, Myndafréttir
Föstudagurinn 14.janúar – Handbolti og listakynning Röskvu

Nú á föstudaginn, 14.janúar, verður mikið um að vera hjá Röskvu. Við ríðum á vaðið með „strákunum okkar“ og horfum á leikinn í kosningarmiðstöðinni kl. 16:00. Húsið verður opið áfram eftir leik þar sem allir geta drukkið bjór í góðum félagsskap. Vísindaferðir eru boðnar velkomnar til að brúa bilið þangað til listakynning Röskvu hefst á [...]

Viðtal við Gabriellu Unni oddvita Röskvu

06. 10. 2010 Fréttir

Gabriella Unnur Kristjánsdóttir er oddviti Röskvu og varaformaður stúdentaráð.  Hún gegnir starfi Hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúa stúdenta. Gabriella er 2. árs laganemi. Segðu frá sjálfri þér, hver er Gabriella? Gabriella er tuttuguogtveggja ára stúlka sem er uppalin í Breiðholtinu, nánar tiltekið Fellahverfinu.  Hún tekur sjálfa sig hæfilega alvarlega enda með sérstakan hæfileika að lenda í hlægilegum [...]

Háskólanemendur sviknir!

06. 10. 2010 Fréttir, Greinar

Úr Röskvufréttum 20 apríl 2010 Þann 17. mars síðastliðinn var haldin málstofa um réttindi nemenda til náms og framfærslu í sumar Árni Páll félagsmálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra fluttu erindi og sátu fyrir svörum.  Mátti sjá að gestir málstofunnar voru orðnir áhyggjufullir yfir sumrinu enda ekki bjartir tímar í atvinnumálum stúdenta framundan. Ljóst var að [...]

Jafnréttisdagar í Háskóla Íslands

17. 09. 2010 Fréttir
Jafnréttisdagar í Háskóla Íslands

Í næstu viku, dagana 20. – 24. september, verða haldnir jafnréttisdagar í Háskóla Íslands. Á dögunum kennir ýmissa grasa og eru á dagskrá meðal annars hinsegin leikrit, umræður um karlmennskuímyndir og gagnkynhneigðarhyggju, þar sem að Páll Óskar Hjálmtýsson flytur erindi, kvöldstund með Rauðsokkum og tónleikar Táknmálskórsins. Skipuleggjendur daganna eru samsuða nemenda, kennara og annars starfsfólks [...]

Málefni fjarnema

31. 01. 2010 Fréttir, Málefnaskrá 2012

Röskva vill stuðla að því að sérstöku netfangi fyrir fjarnema verði komið upp sem hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs hafi umsjón með. Þar skal vera vettvangur fyrir fjarnema til að koma að spurningum, kvörtunum eða öðrum ábendingum, sem hagsmunafulltrúi aðstoðar þá við að leysa úr. Einnig vill Röskva að hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs beiti sér fyrir málefnum fjarnema með auknum hætti.  Röskva vill leggja sérstaka áherslu á að kennarar séu tæknilega undir það búnir að kenna nemendum í fjarnámi alveg frá byrjun annar.

 

Röskva vill að staðlotur fjarnema séu skipulagðar með hagsmuni nemendanna að leiðarljósi. Oft er kennslustundum sem myndu auðveldlega rúmast á tveimur dögum dreift yfir heila viku, með tilheyrandi kostnaði og óþægindum fyrir fjarnema. Röskva vill að skipulag staðlota í valfögum sé í samræmi við aðrar staðlotur sem skipulagðar eru.

Röskva vill, í samræmi við hugsjón sína um að gera stúdentum kleift að lifa á ódýrari máta, að ferðastyrkur/afsláttur fyrir stúdenta sem stunda fjarnám, eru utan af landi eða stunda nám á Laugarvatni, standi til boða og ferðalán LÍN séu í samræmi við verðlag.

Röskva vill að sem allra flestar kennslustundir séu teknar upp og gerðar aðgengilegar á netinu. Tæknin er til staðar, það þarf bara að virkja hana. Þetta kæmi bæði fjarnemum sem og staðnemum til góða því oft á fólk ekki heimangengt af óviðráðanlegum orsökum.


Önnur vikan að hefjast

24. 01. 2010 Fréttir, Myndafréttir
Önnur vikan að hefjast

Það styttist óðum í kosningarnar, en kosið verður í næstu viku þann 3. og 4. febrúar. Nú hefst önnur vika hinnar eiginlegu kosningabaráttu og er margt skemmtilegt framundan. Borðasetan heldur áfram af fullum krafti og verða Röskvuliðar til taks í langflestum byggingum Háskólans allt fram að kosningum. Er ekki úr vegi að líta til þeirra [...]