Skítleg vinnubrögð

27. 01. 2010 Greinar

Í gær gáfum við í Röskvu út grein um heiðarleika og háskólapólitík þar sem við hvöttum Vökuliða til heiðarlegrar kosningabaráttu. Það er óneitanlega kaldhæðnislegt að á sama degi birti Vaka kosningablað sitt sem er svo uppfullt af rangfærslum um stefnu Röskvu að það tæki sennilega heila bók að leiðrétta þær. Það verður að teljast sorglegt [...]

Slæmt ár fyrir hagsmunabaráttu stúdenta?

26. 01. 2010 Greinar

2009: Slæmt ár fyrir hagsmunabaráttu stúdenta? Sjúkra-og upptökuprófin: Sá stóri sigur sem Röskva náði, með sjúkra-og upptökuprófum í janúar og júní, varð að engu þegar margar deildir snéru til fyrra fyrirkomulags sjúkra- og upptökuprófa með tilfallandi óþægindum fyrir stúdenta. Núverandi skipulag er óásættanlegt fyrir stóran hluta stúdenta. Það ætti að vera eitt af stærstu baráttumálum [...]

Heiðarleiki

26. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir
Heiðarleiki

Þegar ég var spurður fyrir ári síðan hvort að ég vildi taka sæti á lista hjá Röskvu þá vissi ég ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga. Ég var fyrir löngu búin að taka þá ákvörðun að ég hafði ekki áhuga á að taka beina afstöðu til málefna sem tengjast flokkapólitík. Eftir nánari umhugsun, [...]

Fæðingarstyrkur námsmanna dugir ekki

24. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir
Fæðingarstyrkur námsmanna dugir ekki

Það er sívaxandi hópur fólks sem á börn á meðan námstíma stendur. Það hefur líklega verið besta fjárfestingin okkar á undanförnum árum þó sumir hagfræðingar væru ef til vill ósammála. Háskóli Íslands vill bjóða upp á fjölskylduvænt umhverfi og hafa framfarir á fjölskyldumálum verið miklar á undanförnum árum. Stúdentagarðarnir í Fossvoginum er mikill sigur fyrir [...]

Hvernig stendur á því…?

24. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir
Hvernig stendur á því…?

Ágæti lesandi. Í Háskóla Íslands eru fimmtán þúsund nemendur sem búa við mismunandi aðstæður og skilyrði. Margir eru að trítla sín fyrstu skref úr hreiðri foreldra og eru að leigja eða kaupa sínu fyrstu íbúð, sumir dvelja enn í foreldrahúsum og enn aðrir eru að stofna til sambúðar, mögulega komnir með litla fjölskyldu eða eru [...]

Að sofa eða vaka? Rán á réttindum stúdenta um hábjartan dag!

20. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir
Að sofa eða vaka? Rán á réttindum stúdenta um hábjartan dag!

Nú í ár er enn og aftur komið svo fyrir að stúdentar þurfa að berjast fyrir réttindum sínum um bætt kerfi sjúkra- og upptökuprófa. Röskva vann þann stóra sigur að sjúkra- og upptökupróf voru sett á í janúar og júní á síðasta ári. Í mörg ár þar á undan höfðu öll sjúkra- og upptökupróf verið [...]

Hver er einn í heiminum?

16. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir
Hver er einn í heiminum?

Á sama tíma og íslenskir stúdentar naga blýanta eftir verðskuldað jólafrí, hírist hinn tuttugu og fjögurra ára gamli Majid Tavakoli í fangelsi einhversstaðar í Íran. Það veit enginn hvar Majid er haldið. Hið eina sem er talið fullvíst er að síðan hann var fangelsaður fyrir rúmum mánuði síðan, hefur hann þurft að þola yfirheyrslur, barsmíðar [...]

Hagsmunafélög í útrýmingarhættu?

21. 10. 2009 Greinar

Háskólasamfélagið fer sífellt stækkandi og stúdentar við Háskóla Íslands hafa aldrei verið fleiri en nú . Í svona stóru samfélagi þarf að gæta að hagsmunum allra nemenda til að geta skapað gott umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk. Nú til dags starfa við HÍ nokkur hagsmunafélög stúdenta. Þau eru Skyn – félag fólks með sértæka námsörðuleika, [...]

Takk Vaka fyrir kökuna!

01. 10. 2009 Greinar

Þær voru óneitanlega gleðilegar fréttirnar sem bárust stúdentum í síðustu viku þess efnis að til stæði að hækka námslánin um heil tuttugu prósent!Ég er sannfærð um að áhyggjubagginn á herðum margra stúdenta hafi gisnað töluvert við þessar fregnir enda um gríðarlega kjarabót að ræða fyrir þá tekjuminnstu. Það vakti hinsvegar blendnar tilfinningar þegar ég fékk einnig [...]

Aukaaðalfundur Röskvu

01. 10. 2009 Greinar

Boðað hefur verið til auka-aðalfundar Röskvu næstkomandi miðvikudag 7. október. Á fundinum verður nýtt fólk skipað lausar stöður sem eru í stjórn samtakanna um leið og honum er ætlað að vera kynning á starfseminni fyrir nýliða. Staður og nákvæm tímasetning verða auglýst síðar.