Á morgun og hinn verður kosið til Stúdenta- og Háskólaráðs í Háskóla Íslands. Á morgun er kosið um hvaða einstaklingar og hvaða hreyfing mun leiða hagsmunabaráttu stúdenta næsta árið. Á morgun látum við í ljós skoðun okkar, hverjum við treystum best til þessara starfa. Í mínum huga er valið einfalt. Röskva stendur og hefur alltaf [...]
Tilkoma styrkjakerfis og hækkun frítekjumarks
Lánasjóðsmál hafa alltaf verið mér hugleikin. Röskva hefur undanfarið barist fyrir því að komið verði á styrkjakerfi eins og tíðkast annarstaðar á Norðurlöndunum í stað lánasjóðskerfisins sem við þekkjum í dag. Fjölmargir töldu á sínum tíma að þetta væri óraunhæft með öllu en staðreyndirnar tala sínu máli og í dag hefur nefnd innan LÍN samþykkt [...]
Prinsessan á bauninni
Stúdentar Háskólans eru margir hverjir mjög yndislegt og kurteist fólk. Þeir þakka fyrir sig, rétta hjálparhönd, sturta niður eftir sig og fara um skólann með bros á vör. Það sem ekki allir vita er hvað gerist þegar stúdentar verða svangir. Þeir breytast hægt og rólega í óargardýr sem hafa enga þolinmæði og nenna ekki að [...]
Tímabær endurvakning eldmóðsins
Árið var 2009. Fyrstu daga aprílmánaðar birtust fréttir í fjölmiðlum landsins um setuverkfall stúdenta. Röskva blés til verkfallsins fyrir framan skrifstofu rektors eldsnemma morguns fyrir Háskólaráðsfund. Gengið var inn í kennslustofur – nemendur hvattir til að taka þátt. Tilgangur gjörningsins? Að sýna í verki alvarleika yfirvofandi atvinnuleysis stúdenta um sumarið. Að sýna fram á nauðsyn [...]
Röskva – Rödd stúdenta
Þar sem kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs eru í næstu viku gefst hverjum háskólanema gott tækifæri að líta ögn til framtíðar. Framtíðin næsta árið eru hin nýju hjörtu sem bjóða sig fram til setu í Stúdentaráði. Hjörtun lofa þér bættum kjörum í þeirra kjörtíð og baráttu fyrir sameiginlegum hagsmunum þeirra og þín – að geta [...]
Framboðslistar Röskvu kynntir
Framboðslistar Röskvu til Stúdenta- og Háskólaráðs voru kynntir á listakynningu hreyfingarinnar í kvöld. Listakynningin var haldin á Faktory á Smiðjustíg og rifnaði þakið nánast af húsinu í fagnaðarlátum þegar frambjóðendur ársins voru kynntir. Fyrsta sætið á stúdentaráðslistanum skipar Kristjana Björk Traustadóttir, kennaranemi og formaður Kennó, nemendafélags leik- og grunnskólafræðinema. Hér á eftir fara framboðslistar Röskvu, [...]
Haustblað Röskvu
Styrkjakerfi í stað lánakerfis
Styrkjakerfi í stað lánakerfis. Það er okkar stefna. Undanfarin ár hefur Röskva barist fyrir því að koma á styrkjakerfi í stað lánakerfis á Íslandi, líkt og tíðkast á hinum norðurlöndunum. Þessi barátta Röskvu hefur borið árangur og í dag er lánasjóðurinn að reikna út kosti þess og galla að taka upp þetta kerfi á Íslandi. [...]
Raunsæ markmið – sjálfsagðar breytingar
Upptökupróf – við viljum þau öll. Þegar líða fór á haustönn fór að spyrjast út um háskólann að upptökupróf myndu ekki vera haldin þessa önnina. Þetta eru upplýsingar sem hefðu átt að vera nemendum ljósar í byrjun haustannar, en lítið fór fyrir þeim. Stúdentaráð vakti síðan athygli nemenda á þessu máli og benti á að [...]
Meiri völd til stúdenta
Væri ekki lífið sem stúdent skemmtilegra og auðveldara ef samfélagið okkar væri alvöru stúdentasamfélag? Samfélag þar sem rödd stúdenta hefur raunveruleg áhrif og við upplifum okkur sem hluta af heild. Ekki misskilja, Stúdentaráð gegnir mjög mikilvægu hlutverki, hefur áhrif og er öflugt þrýstiafl. En ímyndið ykkur ef Stúdentaráð hefði enn meiri áhrif og raunverulegt ákvörðunarvald í málefnum er varða stúdenta og stúdentar fylktu sér á bakvið ráðið og þá hagsmunabaráttu sem fer þar fram.


