Röskva
Sigur Röskvu
Á morgun og hinn verður kosið til Stúdenta- og Háskólaráðs í Háskóla Íslands. Á morgun er kosið um hvaða einstaklingar og hvaða hreyfing mun leiða hagsmunabaráttu stúdenta næsta árið. Á morgun látum við í ljós skoðun okkar, hverjum við treystum best til þessara starfa.
Í mínum huga er valið einfalt. Röskva stendur og hefur alltaf staðið fyrir sömu hugsjón. Hugsjónina um að allir eigi að hafa jafnan rétt til náms, óháð kyni, búsetu, fjárhag, fötlun eða stöðu að öðru leyti. Okkar sannfæring haggast ekki.
Fyrir ári síðan sagði ég það sama og ég segi í dag – kosningarnar snúast um hverjum er best treystandi til þess að gæta hags okkar með því að leiða hagsmunabaráttu stúdenta. Fyrir ári síðan talaði ég einnig um verkefnin framundan, að mikilvægast væri að þrýsta á stjórnvöld um forgangsröðun í háskólamálum – svo að Háskóli Íslands gæti enn verið öllum opinn. Þrýstingur frá Stúdentaráði í umboði 15.000 stúdenta getur haft mikil áhrif – sé spilunum rétt spilað út. Upp á það hefur vantað síðasta árið. Það sem við óttuðumst fyrir ári, hækkun skrásetningargjalda og aðgangstakmarkanir – er raunveruleiki dagsins í dag.
Það er hægt að hrósa meirihluta Stúdentaráðs fyrir mörg vel unnin störf síðasta árið og fylkingarnar hafa unnið saman að mörgum góðum málum. En hefði spilamennskan verið í höndum Röskvu, þá hefði stefna og áhersla Stúdentaráðs verið allt önnur. Við hefðum talað hart gegn hækkun skrásetningargjalda og aðgangstakmörkunum – það hefur vantað. Sérstaða Röskvu felst í því að við þorum að láta í okkur heyra, og við viljum að rödd stúdenta sé öflug út á við, mun öflugri en hún hefur verið.
Sigur Röskvu felst í því að við erum samtök sem hafa alltaf talað fyrir jafnrétti allra til náms, í gegnum súrt og sætt. Við höfum rutt veginn, staðið með eigin sannfæringu, talað út frá málefnum og með tímanum hafa önnur öfl færst okkur nær – og því fögnum við. Þannig hefur Röskva sigrað og með þessari hugsun er ég sannfærður um að Röskva muni sigra í kosningunum á morgun og fimmtudag.
Kjósum rödd stúdenta. Kjósum trúverðugasta málsvara kröfunnar um jafnrétti til náms. Kjósum Röskvu til forystu í Háskóla Íslands.
Guðfinnur Sveinsson, stúdentaráðsliði
Tilkoma styrkjakerfis og hækkun frítekjumarks
Lánasjóðsmál hafa alltaf verið mér hugleikin. Röskva hefur undanfarið barist fyrir því að komið verði á styrkjakerfi eins og tíðkast annarstaðar á Norðurlöndunum í stað lánasjóðskerfisins sem við þekkjum í dag. Fjölmargir töldu á sínum tíma að þetta væri óraunhæft með öllu en staðreyndirnar tala sínu máli og í dag hefur nefnd innan LÍN samþykkt að senda frumvarp, með útfærslu af styrkjakerfinu í stað lánasjóðskerfisins, til umsagnar á Alþingi. Þessum sigri þarf að fylgja eftir og Röskva er besti fulltrúinn til þess.
Það má enn gera betur og í dag eru margir gallar á lánasjóðskerfinu. Það er ekki bara það að upphæðin sem þú færð mánaðarlega er skammarlega lág heldur er einnig gert ráð fyrir að þú eigir að vinna 20% með skóla.
En þá kemur nú snilldin við þetta allt saman. Þú mátt ekki vera með nema 750.000 kr. á ári í laun, eftir það fara námslánin að skerðast um 35% umfram þá tölu. Ef ég á að reyna að einfalda þetta, þá getur þú sótt um námslán, þú þarft samt að vinna með námslánunum, þegar þú ferð svo að vinna með námslánunum, þá skerðast námslánin og þá þarftu að vinna meira.
Ágæti lesandi, nú ert þú orðinn ringlaður, en örvænt þú ekki, ég er það líka.
Þetta er vítahringur, vítahringur sem námsmenn komast sjaldan úr, námslánakerfið gagnast okkur því ekki jafn vel og það ætti að gera.
Í málefnaskrá Röskvu stendur:  Röskva leggur áherslu á að frítekjumark LÍN verði hækkað úr 750.000 kr. í að minnsta kosti eina milljón króna. Þessi tala er hugsuð út frá því að þú getir verið með góða sumarvinnu og jafnvel unnið töluverða aukavinnu án þess að námslánin skerðist. Þetta mætti vera hærri tala en þetta er byrjun á einhverju góðu, lítil skref eru líka góð þótt að auðvitað viljum oftast hafa þau sem stærst.
Margir hugsa núna, þessi gaur þarna hjá Röskvu hann er bara óraunhæfur draumóramaður, sem best væri geymdur á bleiku skýi óraunveruleikans ásamt Legolas Greenleaf, Lúnu Lovegood og fleiri ódauðlegum persónum skáldsagnanna.
En það er ótrúlegt hvað hægt er að gera ef viljinn er fyrir hendi, eins og sést kanski best á þeim árangri sem Röskva hefur náð í baráttunni fyrir styrkjakerfi.
Það er eðlileg krafa stúdenta að frítekjumarkið sé hækkað. Þetta er krafa Röskvu og þess vegna áttu að kjósa Röskvu í kosningunum sem verða á Uglunni 1. og 2. febrúar næstkomandi.
Benóný Harðarson, stjórnmálafræðinemi, 2. sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs
Prinsessan á bauninni
Stúdentar Háskólans eru margir hverjir mjög yndislegt og kurteist fólk. Þeir þakka fyrir sig, rétta hjálparhönd, sturta niður eftir sig og fara um skólann með bros á vör. Það sem ekki allir vita er hvað gerist þegar stúdentar verða svangir. Þeir breytast hægt og rólega í óargardýr sem hafa enga þolinmæði og nenna ekki að lyfta tá eða fingri. Þetta ferli gengur mjög hægt en það smitar hratt út frá sér. Óargardýrin hópa sig saman í matsölum skólans þar sem þau geta verið í sem stæðstum hópum. En hvað varð til þess að þessir prúðu háskólanemar breyttust í óargardýr? Málið er einfalt. Þeir fengu ekkert að borða. Þeir gátu ekki keypt sér mat vegna þess hversu dýr hann er. Þau eiga ekki pening til þess að eyða tæpum þúsund krónum á dag í heita og góða máltíð. Stúdent á námslánum hefur engan veginn efni á slíkum upphæðum. Það sem er athyglisvert við þetta er að þetta á aðeins við um svöngu stúdentana í Stakkahlíð. Það er óásættanlegt að í ríkisreknum háskóla sé einkafyrirtæki að reka mötuneyti sem leyfir sér að hafa upphæðir svo háar að þær eru í engu samræmi við fjárhag hinn almenna háskólanema.
Í ár eru tveir frambjóðendur á lista Röskvu sem stunda nám á Menntavísindasviði. Ég, Kristjana Björk, er á öðru ári í smíða- og myndmenntakennaranum og sit í 1. sæti á lista til Stúdentaráðs. Ég er einnig formaður Kennó ásamt því að vera í stjórn Menntavísindasviðs. Hinn frambjóðandinn er Kristjana Björg. Hún er núverandi formaður Röskvu, hefur setið á Háskólaþingi í vetur og situr í 3. sæti til Háskólaráðs.
Ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að bjóða mig fram til Stúdentaráðs er sú að ég vil aukið upplýsingaflæði milli bygginga sem staðsettar eru á Háskólasvæðinu og þeirra sem eru utan þess. Þetta er einn skóli og þess vegna þarf að passa að það sama gildi við alla.
Einn skóli á að bjóða öllum nemendum upp á sömu þjónustu, hvort sem við erum að tala um námsaðstöðu eða matarverð. Við viljum engin óargardýr, við viljum sanngjarnt matarverð allsstaðar og því viljum við berjast fyrir.
Ég bið um þinn stuðning, til þess að berjast fyrir þínum hagsmunum.
Kristjana Björk Traustadóttir, grunnskóla-kennarafræðinemi, 1. sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs
Tímabær endurvakning eldmóðsins
Árið var 2009. Fyrstu daga aprílmánaðar birtust fréttir í fjölmiðlum landsins um setuverkfall stúdenta. Röskva blés til verkfallsins fyrir framan skrifstofu rektors eldsnemma morguns fyrir Háskólaráðsfund. Gengið var inn í kennslustofur – nemendur hvattir til að taka þátt. Tilgangur gjörningsins? Að sýna í verki alvarleika yfirvofandi atvinnuleysis stúdenta um sumarið. Að sýna fram á nauðsyn þess að Háskólaráð tæki ákvörðun um að bjóða upp á sumarannir við Háskóla Íslands til að sporna gegn þessu vandamáli. Að lýsa yfir svartsýni þess varðandi ástandið í þjóðfélaginu og fjárhag stúdenta.
Undirtektir háskólanema voru miklar og í kjölfarið tóku Háskólaráð og rektor mark á staðfestu nemendanna; tekin var ákvörðun um að hafa sumarannir í boði fyrir atvinnulausa stúdenta ásamt möguleika á námslánum frá LÍN til framfærslu stúdenta. Hér má sjá áþreifanlegan árangur þess að stúdentar ákváðu að láta í sér heyra.  Röskva leiddi mótmælin og sýndi þar með að fylkingin er óhrædd við að láta í sér heyra, innan sem utan háskólans. Röskva sýndi að þegar berjast þarf í verki fyrir hagsmunum stúdenta duga engin vettlingatök og stóð upp í hárinu á háskólayfirvöldum.  Þetta er nærtækt dæmi um áhrifamátt og árangur stúdenta.Við skulum líta nokkra mánuði aftur í tímann; til Lundúna í nóvember 2011. Um götur Lundúnaborgar þrömmuðu 10 þúsund mótmælendur vegna ákvörðun ríkisstjórnar um hækkun skólagjalda ríkisháskóla í landinu.  Dregin er skýr og marktæk lína varðandi afstöðu stúdenta til ríkisfjárveitinga háskólanna.
Mótmæli Camilu Vallejo í Chile hafa einnig vakið heimsathygli. Camila er fædd í apríl 1988. Hún var kosin „Person of the Year 2011“ af The Guardian og Time Magazine tilnefndi hana sem eina af 100 áhrifamestu manneskjum ársins. Hvers vegna? Camila leiddi hávær og öflug mótmæli í heimalandi sínu gegn slæmu aðgengi fjárlítilla námsmanna að æðri menntastigum.
Stúdentar geta haft áhrif og barist fyrir hagsmunum sínum með árangursríkum hætti. Til þess þurfum við eldmóð og kröftuga einstaklinga til að leiða baráttu okkar.  Við þurfum að berjast við Háskólann sjálfan og krefjast upptökuprófa sem meginreglu að nýju og við þurfum að standa í stórum slag við stjórnvöld um að fjárveitingar til Háskólans verði auknar og opinber háskóli sé settur í forgang fram yfir þá einkareknu.   Röskva hefur áður sýnt dug og þor í fyrri aðgerðum sínum. Röskva er óhrædd við að berjast fyrir réttindum stúdenta opinberlega. Röskva er tilbúin til að efna til háværra aðgerða til að tryggja réttindi stúdenta. Til að auka vigt slíkra aðgerða þarf Stúdentaráð breitt bakland og stuðning stúdenta Háskóla Íslands. Þess vegna er mikilvægt að kynna sér málefni fylkinganna og frambjóðendur.
Þess vegna er mikilvægt að kjósa Röskvu.
Védís Eva Guðmundsdóttir, stúdentaráðsliði
Röskva – Rödd stúdenta
Þar sem kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs eru í næstu viku gefst hverjum háskólanema gott tækifæri að líta ögn til framtíðar. Framtíðin næsta árið eru hin nýju hjörtu sem bjóða sig fram til setu í Stúdentaráði. Hjörtun lofa þér bættum kjörum í þeirra kjörtíð og baráttu fyrir sameiginlegum hagsmunum þeirra og þín – að geta átt rétt til mannsæmandi náms í góðu námsumhverfi.
Staðan er að vísu sú að mörgum stúdentum finnast kosningarnar ekki skipta miklu máli, á meðan aðrir lifa og hrærast í hringiðunni og hafa mikinn áhuga á málefnum okkar nemenda. Sumir bera einfaldlega ekki mikið skyn á hvað Stúdentaráð er, og heyrst hafa raddir um að það sé ekki nægilega sýnilegt.
Það þarf þó ekki að þýða að Stúdentaráð geri lítið – mikið starf fer fram innan ráðsins og starfsmanna skrifstofunnar, en Stúdentráð er einmitt með fólk á launum við það að berjast fyrir hagsmunum okkar allra.
Stúdentaráð getur vissulega þótt alvarlegt og fyrir suma nemendur eru umræður um hækkun frítekjumarks eða áróður fyrir styrkjakerfi innan Lánasjóðs íslenskra námsmanna ekki það sem heillar í hádegisumræðunni. Það virðist oft gleymast að stúdentaráðsliðar eru að berjast fyrir margvíslegum hlutum. Nýverið fékkst í gegn lækkun verðs á kaffikortum kaffiteríunnar í Þjóðarbókhlöðunni – úr 1500 krónum í 1000 krónur! Hagsmunanefnd bauð mörg hundruð stúdentum að taka þátt í kaffimótmælum í Hlöðunni til að vekja athygli á misræmi í verði milli kaffisölunnar þar og kaffiverði í Hámu. Og viti menn – breytingar fengust í gegn. Eingöngu fyrir tilstilli stúdenta og Stúdentaráðs.
Ég hef talað mikið um þetta kaffikort, ég er líka stolt af því (enda var undirrituð formaður hagsmunanefndar í vetur). Það er eitthvað svo sýnilegur sigur í baráttunni, rétt eins og bygging nýrra Stúdentagarða á lóðinni rétt hjá Odda mun verða, styrkjakerfi innan LÍN (komist frumvarp í gegnum Alþingi) verður innan tíðar eða Stúdentakjallarinn, samkomustaður allra stúdenta, sem gert er ráð fyrir í viðbyggingu við Háskólatorg, en framkvæmdir við það hefjast innan skamms. Stúdentakjallarinn verður endurvakinn að beiðni stúdentaráðsliða. Stúdentaráð hafði áhrif á þetta. Félagsstofnun stúdenta (FS), bakhjarl og góðvinur Stúdentaráðs, hefur ákveðið að verja fjármunum í að koma upp samverusvæði þar sem seldar verða veitingar eins og bjór og vín, fólk getur farið í pílukast milli kennslustunda eða átt sultuslaka kvöldstund á „hverfispöbbnum“.
Ég starfa innan Röskvu. Grundvallarstefna Röskvu hefur alltaf verið sú sama; jafn réttur allra til náms. Allir eiga að hafa tækifæri til að sækja sér æðri menntun ef þeir óska, Háskólinn á að vera opinn öllum óháð efnahag, búsetu, fötlun eða öðru. Okkur finnst að Stúdentaráð eigi virkilega að láta í sér heyra og við viljum láta í okkur heyra.
Við þorum því.
Röskva vill hvetja þig til að kjósa. Kjósa fyrir hagsmuni stúdenta, kjósa fyrir kaffið, kjósa fyrir Stúdentakjallarann, kjósa fyrir LÍN, kjósa fyrir Stúdentagarðana og öll hin málefnin sem á okkur brenna.
Kjóstu fyrir þig.
Brynhildur Bolladóttir, stúdentaráðsliði
Framboðslistar Röskvu kynntir
Framboðslistar Röskvu til Stúdenta- og Háskólaráðs voru kynntir á listakynningu hreyfingarinnar í kvöld. Listakynningin var haldin á Faktory á Smiðjustíg og rifnaði þakið nánast af húsinu í fagnaðarlátum þegar frambjóðendur ársins voru kynntir.
Fyrsta sætið á stúdentaráðslistanum skipar Kristjana Björk Traustadóttir, kennaranemi og formaður Kennó, nemendafélags leik- og grunnskólafræðinema.
Hér á eftir fara framboðslistar Röskvu, til Stúdentaráðs og Háskólaráðs.
Stúdentaráð
1. Kristjana Björk Traustadóttir, kennaranemi
2. Benóný Harðarson, stjórnmálafræðinemi
3. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, laganemi
4. Bergvin Oddsson, stjórnmálafræðinemi
5. Ólöf Eyjólfsdóttir, japönskunemi
6. Þórhallur Helgason, heimspekinemi
7. Iðunn Garðarsdóttir, íslenskunemi
8. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðinemi
9. Fanney Benjamínsdóttir, kynjafræðinemi
10. Salka Margrét Sigurðardóttir, stjórnmálafræðinemi
11. Erla Karlsdóttir, sálfræðinemi
12. Garðar Helgi Biering, laganemi
13. Sólveig Ingólfsdóttir, félagsráðgjafarnemi
14. Magnus Fagernes, eðlisfræðinemi
15. Tinna Björg Úlfarsdóttir, lífefnafræðinemi
16. Konráð Guðjónsson, hagfræðinemi
17. Margrét Arnardóttir, lífeindafræðinemi
18. Þórunn Sveinbjarnardóttir, siðfræðinemi og fyrsti formaður Röskvu
Háskólaráð
1. Anna Rut Kristjánsdóttir, laganemi
2. Einar Valur Sverrisson, stjórnmálafræðinemi
3. Kristjana Björg Reynisdóttir, kennaranemi
4. Bjarni Þóroddsson, laganemi
5. Signý Tindra Dúadóttir, sagnfræðinemi
6. Fannar Freyr Ívarsson, laganemi
Haustblað Röskvu
Hér má nálgast stórglæsilegt Haustblað Röskvu á tölvutæku formi. Góða skemmtun!
Styrkjakerfi í stað lánakerfis
Styrkjakerfi í stað lánakerfis. Það er okkar stefna.
Undanfarin ár hefur Röskva barist fyrir því að koma á styrkjakerfi í stað lánakerfis á Íslandi, líkt og tíðkast á hinum norðurlöndunum. Þessi barátta Röskvu hefur borið árangur og í dag er lánasjóðurinn að reikna út kosti þess og galla að taka upp þetta kerfi á Íslandi. Menntamálaráðherra hefur auk þess stutt þessa tillögu og gefið vilyrði fyrir því að vinna að þessum leiðum.
Ég geri mér grein fyrir því að þessi hugmynd hljómar kannski óraunhæf, því að í „ástandinu“ er enginn peningur til.  Hinsvegar, vill svo heppilega til að þessi leið er raunhæf og þetta kerfi yrði ekki mikið dýrara heldur en okkar rótgróna og gallaða lánakerfi. Núna gæti sumum fundist ég hljóma einsog ég væri að ljúga því þessi leið er „of góð til að vera sönn“. En ég get fullvissað ykkur um það að það er ég ekki að gera. Þetta er bæði gott og satt.
Þetta reikningsdæmi er stórt og flókið, en í stuttu máli þá gengur þetta út á það að ríkið er í dag að niðurgreiða lánin okkar um 51% í formi niðurgreiddra vaxta. Lykilatriðið í núverandi kerfi er að þar er ekki gætt jafnræðis. Sem dæmi má nefna að lögfræðinemar úr HR og HÍ sitja ekki við sama borð þar sem neminn úr HR fær umtalsvert hærri niðurgreiðslu vegna hærri skólagjalda sem lánað er fyrir.
Að þessu sögðu komumst við að því að ríkið styrkir í raun alla til helmings, að meðaltali – það þarf að gæta jafnræðis.
Við teljum að það sé mun skynsamlegri leið sé að styrkja nemendur til háskólanáms, það sem hefur verið gert á hinum norðurlöndunum. Þessari leið berjumst við fyrir.
Sú leið sem við berjumst fyrir felur það í sér að ríkið hætti þeirri stefnu að skuldsetja nemendur, noti frekar sama pening í að snúa dæminu við og styrkja nemendur. Stúdentar gætu síðan valið sjálfir hvernig og hvort þeir vilji skuldsetja sig umfram styrkinn.
Endapunkturinn er þessi. Minni skuldsetning stúdenta, svipuð niðurstaða fyrir ríkið.
Þetta er ekki hugmynd um að stúdentar fái aukin fjárframlög frá ríkinu, þótt það væri einnig gott og blessað, heldur hugmynd um að fjármagninu sem er nú þegar inní kerfinu verði ráðstafað betur.  Þetta er stefna Röskvu og við óskum eftir stuðning stúdenta til að halda þessari vinnu áfram.
Guðfinnur Sveinsson, 1.sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs.
Hvað er Röskva?
Fjárveitingar til háskólans