1. sæti til Háskólaráðs
Fannar er á þriðja ári í lögfræði og vegna þess hve ómissandi hann þykir hefur honum oftar en einu sinni verið líkt við vatnið, loftið og mæður. Hann er kenndur við marga hluti en finnst honum einstaklega skemmtilegt að rífast og gera armbeygjur ásamt því að hlusta á tónlist.
Ef þú mættir breyta einhverju við Háskólann, hvað myndi það vera?
Það er fjölmargt, en helst myndi ég vilja breyta þeim hugsunarhætti sem stundum viðgengst að hlutirnir séu svona eða hinsegin “af því bara”.
Ef þú ættir fjármagn til að nota innan HÍ í hvað myndi það fara ?
Ég myndi fyrst og fremst vilja sjá það fara í að auka gæði kennslunnar, t.d. með því að ráða inn fleiri hæfa kennara og minnka fjölda nemenda í hverri kennslustund.



