2. Margrét Arnardóttir – Lífeindafræði

02. 02. 2010 Frambjóðendur

 
25 ára
2. sæti til Háskólaráðs

Margrét er framhaldsnemi í lífeindafræði en er hæfileikaleysi hennar í fimleikum svo mikið að þegar aðspurð er sá galli hennar dreginn upp, sérstaklega það atvik þegar hún hljóp á hestinn í stað þess að hoppa yfir hann.

Hverjir eru helstu gallar Háskólans?
Fjársvelti hefur allt of mikil áhrif á bæði kennslu og aðstöðumál nemenda. Einnig þarf að hlúa enn betur að þeim nemendum sem stunda nám utan við hinn eiginlega háskólakjarna, hvort sem er í Læknagarði eða á Laugarvatni.
Hvað er Stúdentaráð fyrir þér?
Stúdentaráð þarf að tryggja að ekki sé traðkað á réttindum samnemenda sinna. Barátta fyrir bærilegra stúdentalífi er eitt helsta hlutverk þess, t.d. með bættri námsaðstöðu, ódýrari almenningssamgöngum og engum skólagjöldum.