3. Heiðar Lind Hansson – Sagnfræði

02. 02. 2010 Frambjóðendur

 
23 ára
3. sæti til Háskólaráðs

Heiðar er í mastersnámi í sagnfræði. Eitt það leiðinlegasta sem hann tekur sér fyrir hendur er að kantskera gloppur á golfvelli en finnst honum samt mjög gaman að spila golf.

Hverjir eru helstu gallar Háskólans? Fjársvelti. Því miður þá eru “peningar afl þeirra hluta sem gjöra skal” eins og Einar Benediktsson skáld hafði fyrir sér forðum daga. Fjársvelti bitnar að kennslunni og háskólasamfélaginu í heild sinni.

Ef þú mættir breyta einhverju við Háskólann, hvað myndi það vera?
Auka stuðning við nema á fyrsta ári. Hljómar kannski furðulega en nýnemar eru mjög misjafnlega undirbúnir frá framhaldsskólum landsins fyrir háskólanám. Brottfall úr mörgum deildum háskólans er vandamál og brýnt verkefni sem þarf að leysa.