3. sæti til Stúdentaráðs
Kristín er á fyrsta ári í verkfræði og á engin börn. Hennar helsta markmið í lífinu er að berjast ötullega að mannréttindum og segir hún sig vera marksækin fjallakind.
Af hverju ert þú á móti skólagjöldum?
Vegna þess að góð menntun er björgunarhringur fyrir íslenskt samfélag í þeirri stöðu sem það er í núna og því er skynsamlegt að greiða sem mest fyrir aðgengi að menntun.
Skólagjöld eru einskonar markaðsvæðing menntunar og fjárhagshrunið núna hefur kennt okkur hversu varasamt er að treysta á markaðslögmál til að byggja upp samfélag.
Samábyrgð á menntun samfélagsins er vænlegust til að skila okkur bestum árangri og réttlátu og heiðarlegu samfélagi, samfélagi jöfnunar og samvinnu.
Af hverju Röskva?
Núna þegar kreppir að er þannig ástand að fólk flykkist í nám í háskólum á sama tíma og skorið er niður fé til háskóla. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að til séu öflug og kröftug baráttusamtök stúdenta, það er þörf á öflugri hreyfingu sem lætur rödd stúdenta heyrast í því mikla verkefni að reisa athafnalíf og þjóðfélag við á Íslandi.



