4. Björn Rafn Gunnarsson – Stjórnmálafræði

02. 02. 2010 Frambjóðendur

 
20 ára
4. sæti til Stúdentaráðs

Björn er á fyrsta ári í stjórnmálafræði en einnig stór áhugamaður um lífrænt jógúrt frá biobú. Honum finnst almenn þrif ágæt en þrátt fyrir það leiðist honum innilega að ryksuga bíla.

Af hverju ert þú á móti skólagjöldum?
Það er ákaflega mikilvægt að allir átti sig á því að það er munur á innritunargjöldum og skólagjöldum. Tel ég að innritunargjöldin sem nú eru til staðar réttlætanleg upp að vissu marki. Hins vegar ganga skólagjöld gegn hugsjón minni. Skólagjöld byggja þröskuld sem gerir fólki erfiðara að sækja nám, allir eiga að hafa tækifæri til þess að spreyta sig innan Háskólans og fjárhagur einstaklinga á ekki að hafa áhrif á það.
Ef þú mættir breyta einhverju við Háskólann, hvað myndi það vera?
Ég tel mjög brýnt að HÍ taki upp samrýmdar reglur á milli deilda um endurtektar- og sjúkrapróf. Þetta er eitthvað sem Röskva barðist fyrir harðri hendi á sínum tíma og kom í gegn en féll svo í stjórnartíð annars baráttuhóps stúdenta í fyrra, sorglegt en satt.

Ef þú mættir bæta eitthvað eitt við Háskólann, hvað myndi það vera?
Eftir sa. 15 sekúndna umhugsun þá tel ég allavega mjög brýnt að HÍ taki upp samrýmdar reglur á milli deilda um endurtektar- og sjúkrapróf. Semsagt að því verði aftur komið þannig á að þau séu haldin í janúar fyrir haustönn, og svo í maí/júní eftir vorönn.
Þetta er eitthvað sem Röskva barðist fyrir harðri hendi á sínum tíma og kom í gegn en féll svo í stjórntíð annars baráttuhóps stúdenta í fyrra, sorglegt en satt.
Þetta er svona það fyrsta sem mér dettur í hug.