5. sæti til Stúdentaráðs
Hörður er á öðru ári í stjórnmálafræði hefur lent í ýmsu í lífinu, bæði vandræðalegu og mjög eftirminnilegu, en hans helsta markmið í lífinu er að gera móður sína stolta.
Vandræðalegasta lífsreynslan
Ætli það sé ekki þegar ég ökklabrotnaði af spenningi á hlaupum niður Spænsku þrepin í Róm fyrir framan u.þ.b. 500 ferðamenn með myndavélar. Og á leiðinni á fyrsta stefnumót. Mjög vandræðalegt.
Ef þú ættir fjármagn til að nota innan HÍ í hvað myndi það fara?
Ég myndi slétta úr hringstiganum á Háskólatorginu, fáránleg hönnun. Nei, í fullri alvöru myndi ég líklega nýta mér það fjármagn til tvenns, annað þeirra er þó reyndar ekki innan HÍ en engu að síður mjög mikilvægt. Í fyrsta lagi myndi ég nota peninginn í að bæta eiginfjárstöðu LÍN stórlega. Í öðru lagi þyrfti að bregðast betur við þeim mikla fjölda nemenda sem nú á síðasta ári hófu nám við Háskóla Íslands.
Af hverju Röskva?
Í fyrsta lagi hef ég kosið Röskvu einfaldlega vegan þess að ég treysti þeim best til að sjá fyrir mínum hagsmunum sem nemanda innan Stúdentaráðs. Það var svo ekki fyrr en ég fór að kynna mér málefnaskrána sem ég varð sannfærður um að þarna ætti ég heima, það var því frekar auðvelt val fyrir mig.
Ef þú ættir fjármagn til að nota innan HÍ í hvað myndi það fara ?
Ég myndi slétta úr hringstiganum á Háskólatorginu, fáranleg hönnun. Nei þá myndi ég í fullri alvöru líklega nýta mér það fjármagn til tvenns, annað þeirra er þó reyndar ekki innan HÍ en engu að síður fokk mikilvægt.
1) Í fyrsta lagi myndi ég nota þann pening til að bæta eiginfjárstöðu LÍN stórlega og afturkalla þá breytingu sem varð ´92 þegar námsmenn hættu að fá fasta mánaðarlega útborgun og þurftu að reiða sig á yfirdráttarlán frá bönkunum. Slíkt er algjörlega óásættanlegt og myndi ég klárlega nota þennan pening að hluta til þess að bæta megi úr.
2) Í öðru lagi þarf að bregðast betur við þeim mikla fjölda af nemendum sem nú á síðasta ári hófu nám við Háskóla Íslands, þegar sú mikla sprenging varð vöknuðu nemendur og aðrir til vitundar um hversu sveltur fjármagni háskólinn er og einnig þá staðreynd að fjöldatakmarkanir gætu einhvern tímann þurft að verða að veruleika. Ég tel það sorglega staðreynd og því myndi ég eyða þessum pening innan háskólans til að koma í veg fyrir að aukinn fjöldi nemenda bitni ekki á kennslu og náminu sem þar stendur til boða.



