6. Lilja Kristín Jónsdóttir – Sálfræði

02. 02. 2010 Frambjóðendur

 
21 ára
6. sæti til Stúdentaráðs

Lilja er á fyrsta ári í sálfræði. Hún er einstaklega söngelsk egilsstaðamær og baráttuglöð en hefur hún gríðalega löngun á að komast út í geim.
 
Hvað er Stúdentaráð fyrir þér?
Stúdentaráð á að vera afl sem berst fyrir hagsmunum stúdenta, hvort sem málefnin liggja innan skólans eða utan hans. Stúdentaráð á alltaf að hafa hagsmuni allra stúdenta að leiðarljósi. Það á að vinna á heiðarlegan og uppbyggilegan hátt, og vera tilbúið til þess að standa upp og láta heyra í sér þegar vegið er að einni mikilvægustu auðlind Íslands – námsmönnum.

Af hverju valdir þú námið sem þú ert í?
Ég vann á Landspítalanum í eitt ár sem hjúkrunarritari og mér fannst svo gaman að spjalla við allskonar fólk allan daginn og veita því sáluhjálp þegar svo bar undir. Svo fannst mér líka svo frábært að vinna á heilbrigðisstofnun. Þegar ég setti þessi tvö atriði saman kom sálfræðin út sem fyrsti valkostur í námi. Ég er gríðarlega ánægð með það val.