1. sæti til Stúdentaráðs
Edda er móðir, eiginkona og er á fyrsta ári í hagfræði. Hana dreymir um að heimsækja Afríku og drekkur hún ekki bjór, sem gerir hana einstaka í hópi röskvuliða.
Af hverju ert þú á móti skólagjöldum?
Besta fjárfesting sem hægt er að gera á tímum sem þessum er að fjárfestingin í mannauði og þekkingu. Það er nauðsynlegt að hlúa að grunnstoðum samfélagsins eins og menntun og því þurfa allir að hafa jafna möguleika til náms.
Hvað er Stúdentaráð fyrir þér?
Nauðsynlegt afl til að gæta hagsmuna stúdenta. Það á að vera eftirsóknarvert að vera í háskóla og enn eftirsóknarverðara að fá vel menntað fólk út í samfélagið. Því þarf einhver að gæta hagsmuna stúdenta innan skólans jafnt og utan hans. Það fylgir þessu starfi mikil ábyrgð sem ber að fara vel með.



