Þann 3. og 4. febrúar næstkomandi verður kosið til Stúdentaráðs og Háskólaráðs í Háskóla Íslands. Röskva kynnir stórglæsilega lista fyrir bæði ráðin árið 2010, sem erfitt verður fyrir uppstillingarnefndir komandi ára að toppa. Fólkið á listunum er ekki einungis bráðmyndarlegt, heldur bráðsnjallt, stórskemmtilegt, sérlega hæfileikaríkt og kemur úr fjölbreyttum hópi innan Háskólans. Röskvu þykir ljóst að ekki sé möguleiki fyrir hendi að finna hæfara fólk til að stýra Stúdentaráði eða veita háskólayfirvöldum aðhald innan háskólaráðs.
Hér fyrir neðan má sjá sigurlista Röskvu fyrir kosningarnar 2010.
Stúdentaráð
1. Edda Hermannsdóttir – Hagfræði
2. Magnús Þorlákur Lúðvíksson – Hagfræði
3. Kristín Helga Magnúsdóttir – Verkfræði
4. Björn Rafn Gunnarsson – Stjórnmálafræði
5. Hörður Unnsteinsson – Stjórnmálafræði
6. Lilja Kristín Jónsdóttir – Sálfræði
7. Yousef Ingi Tamimi – Hjúkrunarfræði
8. Ólöf Auður Erlingsdóttir – Kennaradeild
9. Hinrik Örn Hinriksson – Japanska
10. Urður Anna Björnsdóttir – Kínverska
11. Hjalti Jón Sverrisson – Guðfræði
12. Ragnhildur Agla Þorsteinsdóttir – Íþróttadeild
13. Kristján Einarsson – Stærðfræði
14. Anna Bergmann Björnsdóttir – Ferðamálafræði
15. Óskar Ingi Magnússon – Verkfræði
16. Sigurlaug Helga Pétursdóttir – Lögfræði
17. Jakob Ómarsson – Viðskiptafræði
18. Bergþóra Snæbjörnsdóttir – Sálfræði
Háskólaráð
1. Fannar Freyr Ívarsson – Lögfræði
2. Margrét Arnardóttir – Lífeindafræði
3. Heiðar Lind Hansson – Sagnfræði
4. Brynja Huld Óskarsdóttir – Íslenska og ritlist
5. Ívar Sveinbjörn Schram – Félagsráðgjöf
6. Þórunn Elísabet Bogadóttir – Stjórnmálafræði
