Framboðslistar Röskvu kynntir

13. 01. 2012 Fréttir, Myndafréttir

Framboðslistar Röskvu til Stúdenta- og Háskólaráðs voru kynntir á listakynningu hreyfingarinnar í kvöld. Listakynningin var haldin á Faktory á Smiðjustíg og rifnaði þakið nánast af húsinu í fagnaðarlátum þegar frambjóðendur ársins voru kynntir.

Fyrsta sætið á stúdentaráðslistanum skipar Kristjana Björk Traustadóttir, kennaranemi og formaður Kennó, nemendafélags leik- og grunnskólafræðinema.

Hér á eftir fara framboðslistar Röskvu, til Stúdentaráðs og Háskólaráðs.

Stúdentaráð
1. Kristjana Björk Traustadóttir, kennaranemi
2. Benóný Harðarson, stjórnmálafræðinemi
3. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, laganemi
4. Bergvin Oddsson, stjórnmálafræðinemi
5. Ólöf Eyjólfsdóttir, japönskunemi
6. Þórhallur Helgason, heimspekinemi
7. Iðunn Garðarsdóttir, íslenskunemi
8. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðinemi
9. Fanney Benjamínsdóttir, kynjafræðinemi
10. Salka Margrét Sigurðardóttir, stjórnmálafræðinemi
11. Erla Karlsdóttir, sálfræðinemi
12. Garðar Helgi Biering, laganemi
13. Sólveig Ingólfsdóttir, félagsráðgjafarnemi
14. Magnus Fagernes, eðlisfræðinemi
15. Tinna Björg Úlfarsdóttir, lífefnafræðinemi
16. Konráð Guðjónsson, hagfræðinemi
17. Margrét Arnardóttir, lífeindafræðinemi
18. Þórunn Sveinbjarnardóttir, siðfræðinemi og fyrsti formaður Röskvu

Háskólaráð
1. Anna Rut Kristjánsdóttir, laganemi
2. Einar Valur Sverrisson, stjórnmálafræðinemi
3. Kristjana Björg Reynisdóttir, kennaranemi
4. Bjarni Þóroddsson, laganemi
5. Signý Tindra Dúadóttir, sagnfræðinemi
6. Fannar Freyr Ívarsson, laganemi