Röskva vill stuðla að því að sérstöku netfangi fyrir fjarnema verði komið upp sem hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs hafi umsjón með. Þar skal vera vettvangur fyrir fjarnema til að koma að spurningum, kvörtunum eða öðrum ábendingum, sem hagsmunafulltrúi aðstoðar þá við að leysa úr. Einnig vill Röskva að hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs beiti sér fyrir málefnum fjarnema með auknum hætti. Röskva vill leggja sérstaka áherslu á að kennarar séu tæknilega undir það búnir að kenna nemendum í fjarnámi alveg frá byrjun annar.
Röskva vill að staðlotur fjarnema séu skipulagðar með hagsmuni nemendanna að leiðarljósi. Oft er kennslustundum sem myndu auðveldlega rúmast á tveimur dögum dreift yfir heila viku, með tilheyrandi kostnaði og óþægindum fyrir fjarnema. Röskva vill að skipulag staðlota í valfögum sé í samræmi við aðrar staðlotur sem skipulagðar eru.
Röskva vill, í samræmi við hugsjón sína um að gera stúdentum kleift að lifa á ódýrari máta, að ferðastyrkur/afsláttur fyrir stúdenta sem stunda fjarnám, eru utan af landi eða stunda nám á Laugarvatni, standi til boða og ferðalán LÍN séu í samræmi við verðlag.
Röskva vill að sem allra flestar kennslustundir séu teknar upp og gerðar aðgengilegar á netinu. Tæknin er til staðar, það þarf bara að virkja hana. Þetta kæmi bæði fjarnemum sem og staðnemum til góða því oft á fólk ekki heimangengt af óviðráðanlegum orsökum.


