Væri ekki lífið sem stúdent skemmtilegra og auðveldara ef samfélagið okkar væri alvöru stúdentasamfélag? Samfélag þar sem rödd stúdenta hefur raunveruleg áhrif og við upplifum okkur sem hluta af heild. Ekki misskilja, Stúdentaráð gegnir mjög mikilvægu hlutverki, hefur áhrif og er öflugt þrýstiafl. En ímyndið ykkur ef Stúdentaráð hefði enn meiri áhrif og raunverulegt ákvörðunarvald í málefnum er varða stúdenta og stúdentar fylktu sér á bakvið ráðið og þá hagsmunabaráttu sem fer þar fram.
Í hinum ýmsu löndum fer allt í uppnám þegar brotið er á réttindum stúdenta, óeirðir geysa og ákvörðunum gegn hagsmunum þeirra er mótmælt af hörku. Allir taka þátt, allir eru með.
Ég er alls ekki að hvetja til óeirða. Ég vil að á okkur, þennan stóra hóp í samfélaginu, sé hlustað og við tekin meira alvarlega. Ég vil að við stöndum saman öll sem eitt þegar á okkur er brotið og myndum berjast gegn óréttlátum ákvörðunum sem virkilega brjóta á réttindum okkar.
Ég myndi líka vilja að stúdentar byggju saman í komplexum og elduðu núðlurnar sínar saman í sameiginlegum eldhúsum, eins og í hinum ýmsu löndum, en það er annar handleggur.
Röskva vill að rödd stúdenta verði háværari í samfélaginu.
Röskva vill að hlutfall stúdenta í ráðum og nefndum sem varða málefni okkar verði aukið til muna, því í dag er hlutfallið smánarlega lágt. Vissir þú t.d. að í dag hafa stúdentar engan fulltrúa í fjármálanefnd Háskóla Íslands? Það þýðir að stúdentar hafa ekkert um það að segja hvert peningarnir sem háskólanum er úthlutað fara. Þar viljum við aukin völd til stúdenta – einhver völd.
Stúdentaráð hefur í áranna rás náð miklum árangri í hagsmunabaráttu stúdenta en þó má margt betur fara. Ítrekað eru teknar ákvarðanir án samráðs við stúdenta og er slíkt óásættanlegt.
Hafi stúdentar meiri völd innan nefnda og ráða gætu þeir haft mun meiri áhrif á ákvörðunartöku í öllum málum frá upphafi.
- Við gætum komið í veg fyrir að aðgangur að skólanum væri takmarkaður.
- Við gætum komið í veg fyrir að upptökupróf væru afnumin sem meginregla
- Við gætum unnið enn fleiri sigra i hagsmunabaráttu stúdenta


