Það styttist óðum í kosningarnar, en kosið verður í næstu viku þann 3. og 4. febrúar. Nú hefst önnur vika hinnar eiginlegu kosningabaráttu og er margt skemmtilegt framundan.
Borðasetan heldur áfram af fullum krafti og verða Röskvuliðar til taks í langflestum byggingum Háskólans allt fram að kosningum. Er ekki úr vegi að líta til þeirra og fá skyndinámskeið í hagsmunamálum stúdenta, jafnvel eitthvað lesefni og aldrei er að vita nema þeir lumi á kaffi og með því.
Röskvan fylgist einnig spennt með landsliðinu í handbolta og eru allir leikirnir sýndir á breiðtjaldinu í kosningamiðstöðinni. Það myndast alltaf rífandi stemming yfir leikjunum og má enginn missa af því að horfa á leikinn með okkur.
Skemmtihliðin situr heldur ekki á hakanum, en fram undan eru skemmtileg tónleikar í kosningamistöðinni og svo auðvitað hið ógleymanlega SVITABALL 2010 um næstu helgi. Nánari upplýsingar koma inn þegar nær dregur.
Við viljum líka benda á facebook síðuna okkar, en þar eru hægt að fá brakandi fréttir úr hagsmunastarfinu.


