Upptökupróf – við viljum þau öll.
Þegar líða fór á haustönn fór að spyrjast út um háskólann að upptökupróf myndu ekki vera haldin þessa önnina. Þetta eru upplýsingar sem hefðu átt að vera nemendum ljósar í byrjun haustannar, en lítið fór fyrir þeim. Stúdentaráð vakti síðan athygli nemenda á þessu máli og benti á að fyrirkomulag væri misjafnt milli deilda og því nauðsynlegt fyrir nemendur að kynna sér málin. Undanfarinn var sá að Háskólaráð samþykkti breyttar reglur sem fólu í sér að upptökupróf yrðu afnumin sem meginregla. Þó voru á þessum reglum ýmsar undanþágur, sem gaf deildum háskólans í raun kost á að útfæra þetta á ýmsan hátt. Þetta hefur skapað gríðarlegt misræmi milli deilda jafnt og óvissu meðal nemenda.
Það virðist ekki hafa verið hugsað til þess hversu margir nemendur við Háskóla Íslands eru háðir námslánum frá LÍN. Að fjöldi námsmanna fá námslánin fyrirfram greidd frá bankanum og neyðast til að lifa á yfirdrætti á himinháum vöxtum ef tilsettum námsárangri er ekki náð. Þarna skapast erfið staða þegar upptökupróf eru ekki lengur í boði. Vissulega viljum við öll ná prófunum í fyrstu tilraun en það getur ýmislegt komið upp á. Einn slæmur dagur, áföll, prófkvíði eða annað þess eðlis getur allt haft úrslitaáhrif. Að sjálfsögðu viljum við öll fá upptökupróf á ný og að þau séu sem skemmst frá lokum próftímabils. Því mun Röskva berjast af fullum krafti fyrir því að fá upptökupróf sem meginreglu á ný.
Skilafrestur kennara
Í dag eru uppi reglur um skilafrest einkunna á lokaprófum, þriggja vikna skilafrestur á einkunnum á haustmisseri og tveggja vikna skilafrestur á vormisseri. Ágætis árangur hefur náðst í þessum efnum, þó alltaf megi gott bæta og ólíðandi er þegar kennarar virða þessar reglur ekki. Aftur á móti eru engar reglur gildandi hvað varðar einkunnaskil fyrir heimapróf, ritgerðir og skyndipróf. Röskvu finnst eðlileg framvinda að slíkum reglum yrði komið á og telur það réttindi stúdenta að fá að vita hvenær þeir mega vænta einkunna. Þessar annareinkunnir geta haft áhrif á námsframvindu nemenda og gefið þeim til kynna hvort þeir þurfi að spíta í lófana eða séu hreinlega með þetta. Röskva telur að með skýrum reglum og eftirfylgni sé þetta mögulegt.
Samræmt vinnuálag að baki hverri einingu
Við könnumst öll við að vera í einum áfanga sem er 6 einingar og kannski öðrum sem er 10 einingar, en við erum aftur á móti alltaf að skila þungum verkefnum í 6 eininga áfanganum og komumst einhverra hluta vegna frekar létt í gegnum 10 eininga áfangann. Staðreyndin er sú að vinnan sem liggur að baki hverrar einingu er mismikil þrátt fyrir að háskólinn eigi að fara eftir alþjóðlegum stöðlum. Háskólinn á að sjálfsögðu að gera miklar kröfur til stúdenta en þær verða líka að vera samræmdar. Röskva krefst þess að farið verði eftir settum reglum og að einingafjöldi endurspegli vinnuálag.
Hanna María Guðbjartsdóttir, skipar 4.sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs.


