Röskva – Rödd stúdenta

28. 01. 2012 Fréttir, Myndafréttir

Þar sem kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs eru í næstu viku gefst hverjum háskólanema gott tækifæri að líta ögn til framtíðar. Framtíðin næsta árið eru hin nýju hjörtu sem bjóða sig fram til setu í Stúdentaráði. Hjörtun lofa þér bættum kjörum í þeirra kjörtíð og baráttu fyrir sameiginlegum hagsmunum þeirra og þín – að geta átt rétt til mannsæmandi náms í góðu námsumhverfi.

Staðan er að vísu sú að mörgum stúdentum finnast kosningarnar ekki skipta miklu máli, á meðan aðrir lifa og hrærast í hringiðunni og hafa mikinn áhuga á málefnum okkar nemenda. Sumir bera einfaldlega ekki mikið skyn á hvað Stúdentaráð er, og heyrst hafa raddir um að það sé ekki nægilega sýnilegt.

Það þarf þó ekki að þýða að Stúdentaráð geri lítið – mikið starf fer fram innan ráðsins og starfsmanna skrifstofunnar, en Stúdentráð er einmitt með fólk á launum við það að berjast fyrir hagsmunum okkar allra.

Stúdentaráð getur vissulega þótt alvarlegt og fyrir suma nemendur eru umræður um hækkun frítekjumarks eða áróður fyrir styrkjakerfi innan Lánasjóðs íslenskra námsmanna ekki það sem heillar í hádegisumræðunni. Það virðist oft gleymast að stúdentaráðsliðar eru að berjast fyrir margvíslegum hlutum. Nýverið fékkst í gegn lækkun verðs á kaffikortum kaffiteríunnar í Þjóðarbókhlöðunni – úr 1500 krónum í 1000 krónur! Hagsmunanefnd bauð mörg hundruð stúdentum að taka þátt í kaffimótmælum í Hlöðunni til að vekja athygli á misræmi í verði milli kaffisölunnar þar og kaffiverði í Hámu. Og viti menn – breytingar fengust í gegn. Eingöngu fyrir tilstilli stúdenta og Stúdentaráðs.

Ég hef talað mikið um þetta kaffikort, ég er líka stolt af því (enda var undirrituð formaður hagsmunanefndar í vetur). Það er eitthvað svo sýnilegur sigur í baráttunni, rétt eins og bygging nýrra Stúdentagarða á lóðinni rétt hjá Odda mun verða, styrkjakerfi innan LÍN (komist frumvarp í gegnum Alþingi) verður innan tíðar eða Stúdentakjallarinn, samkomustaður allra stúdenta, sem gert er ráð fyrir í viðbyggingu við Háskólatorg, en framkvæmdir við það hefjast innan skamms. Stúdentakjallarinn verður endurvakinn að beiðni stúdentaráðsliða. Stúdentaráð hafði áhrif á þetta. Félagsstofnun stúdenta (FS), bakhjarl og góðvinur Stúdentaráðs, hefur ákveðið að verja fjármunum í að koma upp samverusvæði þar sem seldar verða veitingar eins og bjór og vín, fólk getur farið í pílukast milli kennslustunda eða átt sultuslaka kvöldstund á „hverfispöbbnum“.

Ég starfa innan Röskvu. Grundvallarstefna Röskvu hefur alltaf verið sú sama; jafn réttur allra til náms. Allir eiga að hafa tækifæri til að sækja sér æðri menntun ef þeir óska, Háskólinn á að vera opinn öllum óháð efnahag, búsetu, fötlun eða öðru. Okkur finnst að Stúdentaráð eigi virkilega að láta í sér heyra og við viljum láta í okkur heyra.

Við þorum því.

Röskva vill hvetja þig til að kjósa. Kjósa fyrir hagsmuni stúdenta, kjósa fyrir kaffið, kjósa fyrir Stúdentakjallarann, kjósa fyrir LÍN, kjósa fyrir Stúdentagarðana og öll hin málefnin sem á okkur brenna.
Kjóstu fyrir þig.

Brynhildur Bolladóttir, stúdentaráðsliði