Styrkjakerfi í stað lánakerfis. Það er okkar stefna.
Undanfarin ár hefur Röskva barist fyrir því að koma á styrkjakerfi í stað lánakerfis á Íslandi, líkt og tíðkast á hinum norðurlöndunum. Þessi barátta Röskvu hefur borið árangur og í dag er lánasjóðurinn að reikna út kosti þess og galla að taka upp þetta kerfi á Íslandi. Menntamálaráðherra hefur auk þess stutt þessa tillögu og gefið vilyrði fyrir því að vinna að þessum leiðum.
Ég geri mér grein fyrir því að þessi hugmynd hljómar kannski óraunhæf, því að í „ástandinu“ er enginn peningur til. Hinsvegar, vill svo heppilega til að þessi leið er raunhæf og þetta kerfi yrði ekki mikið dýrara heldur en okkar rótgróna og gallaða lánakerfi. Núna gæti sumum fundist ég hljóma einsog ég væri að ljúga því þessi leið er „of góð til að vera sönn“. En ég get fullvissað ykkur um það að það er ég ekki að gera. Þetta er bæði gott og satt.
Þetta reikningsdæmi er stórt og flókið, en í stuttu máli þá gengur þetta út á það að ríkið er í dag að niðurgreiða lánin okkar um 51% í formi niðurgreiddra vaxta. Lykilatriðið í núverandi kerfi er að þar er ekki gætt jafnræðis. Sem dæmi má nefna að lögfræðinemar úr HR og HÍ sitja ekki við sama borð þar sem neminn úr HR fær umtalsvert hærri niðurgreiðslu vegna hærri skólagjalda sem lánað er fyrir.
Að þessu sögðu komumst við að því að ríkið styrkir í raun alla til helmings, að meðaltali – það þarf að gæta jafnræðis.
Við teljum að það sé mun skynsamlegri leið sé að styrkja nemendur til háskólanáms, það sem hefur verið gert á hinum norðurlöndunum. Þessari leið berjumst við fyrir.
Sú leið sem við berjumst fyrir felur það í sér að ríkið hætti þeirri stefnu að skuldsetja nemendur, noti frekar sama pening í að snúa dæminu við og styrkja nemendur. Stúdentar gætu síðan valið sjálfir hvernig og hvort þeir vilji skuldsetja sig umfram styrkinn.
Endapunkturinn er þessi. Minni skuldsetning stúdenta, svipuð niðurstaða fyrir ríkið.
Þetta er ekki hugmynd um að stúdentar fái aukin fjárframlög frá ríkinu, þótt það væri einnig gott og blessað, heldur hugmynd um að fjármagninu sem er nú þegar inní kerfinu verði ráðstafað betur. Þetta er stefna Röskvu og við óskum eftir stuðning stúdenta til að halda þessari vinnu áfram.
Guðfinnur Sveinsson, 1.sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs.


