Árið var 2009. Fyrstu daga aprílmánaðar birtust fréttir í fjölmiðlum landsins um setuverkfall stúdenta. Röskva blés til verkfallsins fyrir framan skrifstofu rektors eldsnemma morguns fyrir Háskólaráðsfund. Gengið var inn í kennslustofur – nemendur hvattir til að taka þátt. Tilgangur gjörningsins? Að sýna í verki alvarleika yfirvofandi atvinnuleysis stúdenta um sumarið. Að sýna fram á nauðsyn þess að Háskólaráð tæki ákvörðun um að bjóða upp á sumarannir við Háskóla Íslands til að sporna gegn þessu vandamáli. Að lýsa yfir svartsýni þess varðandi ástandið í þjóðfélaginu og fjárhag stúdenta.
Undirtektir háskólanema voru miklar og í kjölfarið tóku Háskólaráð og rektor mark á staðfestu nemendanna; tekin var ákvörðun um að hafa sumarannir í boði fyrir atvinnulausa stúdenta ásamt möguleika á námslánum frá LÍN til framfærslu stúdenta. Hér má sjá áþreifanlegan árangur þess að stúdentar ákváðu að láta í sér heyra. Röskva leiddi mótmælin og sýndi þar með að fylkingin er óhrædd við að láta í sér heyra, innan sem utan háskólans. Röskva sýndi að þegar berjast þarf í verki fyrir hagsmunum stúdenta duga engin vettlingatök og stóð upp í hárinu á háskólayfirvöldum. Þetta er nærtækt dæmi um áhrifamátt og árangur stúdenta.Við skulum líta nokkra mánuði aftur í tímann; til Lundúna í nóvember 2011. Um götur Lundúnaborgar þrömmuðu 10 þúsund mótmælendur vegna ákvörðun ríkisstjórnar um hækkun skólagjalda ríkisháskóla í landinu. Dregin er skýr og marktæk lína varðandi afstöðu stúdenta til ríkisfjárveitinga háskólanna.
Mótmæli Camilu Vallejo í Chile hafa einnig vakið heimsathygli. Camila er fædd í apríl 1988. Hún var kosin „Person of the Year 2011“ af The Guardian og Time Magazine tilnefndi hana sem eina af 100 áhrifamestu manneskjum ársins. Hvers vegna? Camila leiddi hávær og öflug mótmæli í heimalandi sínu gegn slæmu aðgengi fjárlítilla námsmanna að æðri menntastigum.
Stúdentar geta haft áhrif og barist fyrir hagsmunum sínum með árangursríkum hætti. Til þess þurfum við eldmóð og kröftuga einstaklinga til að leiða baráttu okkar. Við þurfum að berjast við Háskólann sjálfan og krefjast upptökuprófa sem meginreglu að nýju og við þurfum að standa í stórum slag við stjórnvöld um að fjárveitingar til Háskólans verði auknar og opinber háskóli sé settur í forgang fram yfir þá einkareknu. Röskva hefur áður sýnt dug og þor í fyrri aðgerðum sínum. Röskva er óhrædd við að berjast fyrir réttindum stúdenta opinberlega. Röskva er tilbúin til að efna til háværra aðgerða til að tryggja réttindi stúdenta. Til að auka vigt slíkra aðgerða þarf Stúdentaráð breitt bakland og stuðning stúdenta Háskóla Íslands. Þess vegna er mikilvægt að kynna sér málefni fylkinganna og frambjóðendur.
Þess vegna er mikilvægt að kjósa Röskvu.
Védís Eva Guðmundsdóttir, stúdentaráðsliði


