Breytingar á sjúkra- og upptökuprófum

01. 02. 2010 Greinar, Myndafréttir

Þegar Röskva sat síðast í meirihluta náði hún loksins í gegn langþráðu baráttumáli; sjúkra- og upptökupróf voru haldin í janúar og júní, í stað þess að vera öll í ágúst eins og áður var.

Þessi sigur stúdenta stóð þó ekki lengi þar sem núna í haust var þessi ákvörðun tekin til baka í mörgum deildum Háskólans. Og til að bæta um betur fengu deildir skólans það vald að ákveða, ekki bara hvenær, heldur hvort prófin væru haldin yfirhöfuð.

Það að núverandi meirihluti Vöku í SHÍ hafi glutrað niður þeim árangri sem náðist áður en hann tók við er alveg hreint ótrúlegt. Þetta mál sýnir svart á hvítu hverjum er treystandi fyrir að berjast fyrir hagsmunum stúdenta og ná árangri.

Röskva vill ekki aðeins að prófin verði færð aftur í öllum deildum til janúar og júní heldur gera enn róttækari breytingar á sjúkra – og upptökuprófum. Þær breytingar ættu að gagnast stúdentum enn frekar í námi sínu og einnig bæta úr þeim hnökrum sem voru á skipulagi prófanna síðasta ár.

Helsta breyting er sú að aðskilja sjúkra- og upptökuprófin. Sjúkraprófin hefðu þá fastar dagsetningar í desember og því alltaf á hreinu fyrir stúdenta hvenær þeirra sjúkrapróf væri haldið. Þetta er til dæmis gert í stjórnmálafræðideild við góðar undirtektir.

Hér má sjá skipulagið á sjúkraprófunum seinustu jól innan stjórnmálafræðideildar;

Sjúkrapróf vegna prófa sem haldin eru tímabilið 2. – 14. desember verða 21.-22. desember.
Sjúkrapróf vegna prófa sem haldin eru tímabilið 15.-18. desember verða 6.-7. janúar.

Upptökuprófin verða hinsvegar ekki haldin fyrr en í maí, sem Röskva telur ósættanlegt. Ef sjúkraprófin væru færð fram um 2 daga mætti ljúka þeim af í desember og hafa svo upptökuprófin í upphafi eða um miðjan janúar. Þetta ferli yrði svo endurtekið um vorið, fastar sjúkraprófsdagsetningar í maí og upptökupróf í byrjun júní.

Þessi breyting gerir það að verkum að þeir sem falla í sjúkraprófum fá sama rétt og aðrir til að taka upptökupróf.
Þeir stúdentar sem verða svo óheppnir að veikjast í prófum neyðast því ekki til að bíða upp í 6 mánuði eftir að fá að taka prófið. Fleiri stúdentar fengju þannig tækifæri til að þreyta upptökupróf, en þegar að upptökupróf er mörgum mánuðum eftir að áfanga lýkur sjá færri stúdentar sér það fært að reyna aftur við prófið.

Önnur stór ástæða þess að Röskva vill færa sjúkra- og upptökupróf fram í janúar og júní er efnahagur stúdenta. Það að hafa einungis eitt sjúkra- og upptökupróf í maí fyrir bæði haust- og vorannarpróf gerir það að verkum að efnaminni stúdentar, sem þurfa að fá fyrirframgreidd námslán frá bönkunum, neyðast til að tikka á yfirdrætti í fleiri mánuði en nokkrum manni er hollt. Það grefur stúdenta enn dýpra í þá skuldagröf sem efnalítið fólk neyðist til að grafa sér hér á landi til að geta sótt sér menntun.

Rauður þráður í öllu starfi Röskvu er jafnrétti til náms. Við teljum aðgengileg sjúkra- og upptökupróf stóran hluta af þeirri baráttu og erum reiðubúin til að berjast (aftur) fyrir breytingu á þeim.