Hagmunasamtök fjarnema

31. 01. 2010 Greinar, Myndafréttir

Núna þegar kosningar eru rétt handan við hornið stunda fylkingarnar símhringingar til nemenda í gríð og erg. Hringingarnar eru hvimleiðar að mörgu leyti en þær bjóða einnig upp á tækifæri til að spjalla saman um sameiginleg hagsmunamál okkar stúdenta við Háskóla Íslands, tækifæri sem mögulega gefast ekki nema í svona símhringingum. Oft kemur ýmislegt í ljós í þessum símtölum því víða er pottur brotinn og betur sjá augu en auga.

Sem dæmi um mál sem nýlega bar á góma í símtali var þegar fjarnemi í Grunnskólakennarafræði sagði okkur í Röskvu frá aðstæðum sínum. Viðkomandi er að vinna við grunnskóla í Reykjavík samhliða fjarnámi sínu og tekur engin námslán. Sem kennaranemi þarf hún, sem og aðrir, að fara í vettvangsnám í annan grunnskóla á svo til hverri önn. Á þessari önn er hún krafin um að fara í þriggja vikna vettvangsnám og í kjölfarið þarf hún að fara í viku staðnám, en það er þegar fjarnemar mæta í skólann og hitta kennara sína og samnemendur. Samtals þarf hún því að vera frá vinnu í fjórar vikur. Nú er svo komið að hún fær engin laun borguð í þessar fjórar vikur, það eina sem henni er boðið upp á er að taka sér launalaust leyfi.

Óskiljanlegt er að skólayfirvöld í Reykjavík, og víðar, hafi ekki meiri metnað til að stuðla að fagmenntun kennara í skólum borgarinnar. Að okkar mati ættu þau að reyna með öllum tiltækum ráðum að hjálpa þeim einstaklingum sem hafa metnað til menntunar að ná þeim markmiðum sínum. Við í Röskvu ætlum að beita okkur fyrir því að vandamál sem þessi komist í umræðuna og yfirvöld, hver sem eiga í hlut, hjálpi fólki að auka menntun sína en ekki öfugt. Það liggur fyrir að sveitastjórnarkosningar fara fram í vor og þar væri kjörið tækifæri til að koma þessum málum inn í stefnu flokkanna. Það kemur þjóðfélaginu öllu til góða að hækka menntunarstig landsmanna.

Röskva hefur það í málefnaskrá sinni að reyna að skapa hagsmunafélögum sem bestar aðstæður innan Háskóla Íslands og vakti til dæmis athygli á skorti á aðstöðu fyrir þessi félög á liðnu ári. Röskva vill aðstoða fjarnema að stofna sín eigin hagsmunasamtök sem sköpuðu þeim eina og sterka rödd. Fjarnemar eru sér á parti innan Háskólans en þeir mega ekki gjalda fyrir sérstöðu sína og þá staðreynd að nemendur hittist sjaldan. Hagsmunasamtök fjarnema væri liður í að koma til móts við þessa miklu þörf, því hagsmunamál fjarnema mega ekki gleymast í háskóla sem á að þjóna öllu landinu.

Smellið hér til að sjá þau málefni fjarnema sem Röskva leggur áherslu á.

Þorleifur Örn Gunnarsson
Stúdentaráðsliði Röskvu