Hagsmunafélög í útrýmingarhættu?

21. 10. 2009 Greinar

Háskólasamfélagið fer sífellt stækkandi og stúdentar við Háskóla Íslands hafa aldrei verið fleiri en nú . Í svona stóru samfélagi þarf að gæta að hagsmunum allra nemenda til að geta skapað gott umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk.

Nú til dags starfa við HÍ nokkur hagsmunafélög stúdenta. Þau eru Skyn – félag fólks með sértæka námsörðuleika, Q – félag hinsegin stúdenta, Femínistafélag Háskóla Íslands, Manía – geðverndarfélag innan Háskóla Íslands og ESN Reykjavík – hagsmunafélag erlendra nema við HÍ.

Hagsmunafélög gegna öðru hlutverki en venjuleg nemendafélög. Þau hafa ávallt gegnt mikilvægu hlutverki í því að hlúa að og berjast fyrir hagsmunum ólíkra hópa innan skólans. Félögin starfa sjálfstætt en eru líka í náinni samvinnu við hvert annað, Stúdentaráð og háskólayfirvöld til að tryggja það að á Íslandi sé raunverulegt jafnrétti til náms og við að vinna gegn mismunun jafnt innan sem utan skólans.

Því miður fer hagsmunafélögunum fækkandi á sama tíma og háskólasamfélagið fer stækkandi. Það má segja að hagsmunafélög háskólans séu í útrýmingarhættu vegna þeirrar lélegu aðstöðu sem þau neyðast að starfa við og skorts á stuðningi frá háskólayfirvöldum. Hagsmunafélögum eru falin stór og mikilvæg verkefni en því miður er þeim ekki gefin þau tæki og tól sem þarf til að sinna slíku starfi. Öll starfsemi þessara félaga byggist á sjálfboðavinnu fárra einstaklinga sem leggja oft mikinn tíma og mikla vinnu í það eitt að halda starfi félagsins gangandi.

Hver vegna er mikilvægt fyrir Háskóla Íslands að hér starfi hagsmunafélög? Nemendur geta leitað til hagsmunafélaganna ef brotið er gegn þeim. Þar geta nemendur og starfsfólk skólans fundið félagsskap og stuðning sem þau þurfa oft á tíðum nauðsynlega á að halda . Félögin stuðla að fræðslu og hafa heildarsýn á jafnréttismálin á hátt sem einstaklingar hafa oft á tíðum ekki. Einnig eru slík félög vakandi yfir því hvað má betur fara og óhrædd við að gagnrýna Háskólann ef þess er þörf. Með starfsemi sinni létta hagsmunafélög þannig mjög vinnu Háskólans í jafnréttismálum.

Ef við viljum að Háskóli Íslands verði áfram háskóli okkar allra og að nemendum líði vel innan hans verðum við að tryggja áframhaldandi starfsemi hagsmunafélaga. Auðvelt væri að bæta úr stöðu hagsmunafélaga. Þau eiga skilin sömu tækifæri og nemendafélög háskólans. Það að gefa hagsmunafélögum aðstöðu í Háskólanum og prentkvóta myndi strax bæta stöðu þeirra til muna og stuðla að áframhaldandi starfsemi þeirra. Þar sem Háskóli Íslands á að vera leiðandi afl í jafnréttismálum verður allt að vera gert til þess að tryggja að hér starfi áfram hópar sem starfa í þágu jafnréttis.

Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir
Sálfræðinemi sem situr fyrir hönd Röskvu í jafnréttisnefnt SHÍ og fyrrverandi formaður Q