Slæmt ár fyrir hagsmunabaráttu stúdenta?

26. 01. 2010 Greinar

2009: Slæmt ár fyrir hagsmunabaráttu stúdenta?


Sjúkra-og upptökuprófin: Sá stóri sigur sem Röskva náði, með sjúkra-og upptökuprófum í janúar og júní, varð að engu þegar margar deildir snéru til fyrra fyrirkomulags sjúkra- og upptökuprófa með tilfallandi óþægindum fyrir stúdenta.
Núverandi skipulag er óásættanlegt fyrir stóran hluta stúdenta. Það ætti að vera eitt af stærstu baráttumálum Stúdentaráðs að gera námið hentugra fyrir stúdentana – okkur sem stundum námið. Sú staðreynd að í ár hafi verið tekið stórt skref afturábak í hagsmunabaráttu stúdenta er miður, slíkt má og á ekki að gerast.

Frítt í strætó verkefnið féll niður og stöðumælarnir stóðu sem fastast.
Þrátt fyrir ítrekuð loforð Vöku náði baráttan gegn stöðumælum litlum árangri, á sama tíma svaf meirihlutinn á verðinum þegar kom að frítt í strætó verkefninu. Nú standa stúdentar ári seinna með brostin loforð og lítinn árangur. Annað skref afturábak í réttindabaráttu stúdenta

Styttur opnunartími bygginga:
Breytt var frá fyrra skipulagi og nú var opnunartími bygginganna takmarkaður gríðarlega, á sama tíma þurftu stúdentar núna í fyrsta sinn að greiða fyrir aðgangskortin. Enn eitt skref afturábak í réttindabaráttu stúdenta

Landsbankadagar: Trúverðugleiki Stúdentaráðs beið hnekki þegar Landsbankinn
keypti aðgang að stúdentum undir formerkjum Fjármáladaga Stúdentaráðs.

Stórfyrirtæki ættu ekki að hafa beinan aðgang að stúdentum á fölskum forsendum. Sú staðreynd að Landsbankinn hafi staðið á bak fjármáladaga Stúdentaráðs og séð um ráðgjöf í nafni ráðsins er vægt til orða tekið óheiðarlegt og sviksamlegt í garð stúdenta.

Jafnréttismál fengu að fjúka fyrir lítið:
Stúdentaráð stendur nú mun aftar en öll stjórnsýsla Háskólans hvað varðar jafnrétti kynjanna. Vaka hafnaði metnaðarfullri hvatningu um aukið jafnrétti kynjanna innan Stúdentaráðs, þar skín afturhaldsemi meirihlutans skýrt í gegn.

Engin aðkoma að samningum LÍN:
Eftir argarþras tók menntamálaráðherra þá góðu ákvörðun að hækka námslán umtalsvert. Sú ákvörðun var hins vegar tekin án nokkurs samráðs við Stúdentaráð. Röskva telur þetta vera mjög neikvæða þróun og veikja stöðu Stúdentaráðs, sem á að vera öflug rödd í öllum málum er varða stúdenta.