Alþjóðasamstarf

20. 01. 2010 Málefnaskrá 2012

Röskva vill áframhaldandi samstarf ESN og Stúdentaráðs.
Röskva vill hlúa að starfi ESN í þágu erlendra nema og styrkja samstarf þess við Stúdentaráð.

Röskva vill auka samstarf Stúdentaráðs og erlendra stúdentasamtaka.

Alþjóðasamstarf stúdentafélaga er gríðarlega mikilvægur þáttur í starfsemi Stúdentaráðs og vill Röskva að ráðið taki virkan þátt í starfi Evrópsku stúdentasamtakanna (ESU), tengslaneti stúdentafélaga í Norður- og Eystrasaltslöndunum (NOM-BOM) sem og annarra alþjóðasamtaka sem ráðið er aðili að. Þá vill Röskva reyna að stuðla að aukinni þátttöku íslenskra fulltrúa í ráðum og nefndum slíkra félaga.

Röskva vill tryggja fulltrúa stúdenta í öllum nefndum er fást við Bologna-ferlið.
Stór hluti stefnumótunar Íslands í menntamálum fer raunverulega fram erlendis, þar sem línurnar eru lagðar með sáttmálum sem evrópskir menntamálaráðherrar samþykkja og innleiða í löndum sínum. Í Bologna-ferlinu er m.a. kveðið á um að fulltrúar stúdenta skuli sitja í öllum nefndum er fást við innleiðingu þess og leggur Röskva áherslu á að því sé fylgt eftir.

Röskva villa auka möguleika á því að hluti náms sé tekinn erlendis
Röskva telur að auðvelda eigi nemendum að taka hluta náms síns erlendis án þess að útskrift frestist. Þrátt fyrir að Ísland sé aðili að samningum um samevrópskt háskólasvæði tíðkast enn í sumum deildum að viðurkenna ekki nám erlendis. Fulltryggja þarf að skiptinám sé metið áður en hafið er nám í öðrum skóla. Til að ná því markmiði þarf að auka tengsl við erlenda háskóla sem má meðal annars efla með skiptinemasamningum. Þá hvetur Röskva HÍ einnig til þess að bjóða upp á fleiri sameiginlega námsmöguleika í erlendum háskólum.