Aðstöðumál stúdenta

18. 01. 2010 Málefnaskrá 2012

Röskva vill aðgang að byggingum Háskóla Íslands – allan sólarhringinn.

Eftir að SHÍ hætti að sjá um stúdentakortin þurfa nemendur að greiða fyrir kort sem gefur þeim aukinn aðgang, en þó aðeins tveimur klukkustundum framyfir almennan opnunartíma bygginga. Þessu er Röskva alfarið á móti og telur brýnt að taka aftur upp aðgang nemenda að aðstöðu sinni allan sólarhringinn. Baráttan er erfið en fyrsta skrefið er sólarhringsopnun í prófatíð.

Röskva vill að kaffistofur á Þjóðarbókhlöðu og í Stakkahlíð séu reknar af Félagsstofnun stúdenta.

FS rekur kaffistofur á háskólasvæðinu með það að leiðarljósi að veita góða og ódýra þjónustu. Einkarekin kaffistofa, til dæmis sú á Þjóðarbókhlöðunni, er ekki aðeins dýrari heldur geta nemendur ekki hitað sér vatn eða grillað samlokur án þess að greiða fyrir það. Röskva vill sjá breytingar í þessum málum án tafar.

Röskva vill aukinn aðgang nemenda að kaffi.

Stúdentar þurfa kaffi.

Röskva vill ljósritunarvélar og skanna fyrir námsmenn.

Röskva vill fleiri ljósritunarvélar og skanna sem stúdentar hafa aðgang að í sem flestar byggingar.

Röskva vill sómasamlega námsaðstöðu fyrir stúdenta.

Við opnun nýju lesaðstöðunnar á Háskólatorgi, Gimli og Tröð var grettistaki lyft í aðstöðumálum stúdenta. Enn má betur gera og tryggja að einungis stúdentar við Háskóla Íslands geti notfært sér lesstofurnar, með sérstakri eftirfylgni í prófatíð. Röskva telur þó að hópavinnuaðstaða nemenda hafi setið á hakanum, en slíkri aðstöðu er enn verulega ábótavant. Röskva vill þrýsta enn frekar á að koma slíkri aðstöðu almennilega upp í öllum byggingum Háskóla Íslands. Fyrsta skrefið væri að opna stofur í öllum byggingum, í því skyni að bæta vinnuaðstöðu. Einnig mætti bæta við skápum á fleiri stöðum líkt og eru í Gimli.