Fjárhags- og samkeppnisstaða Háskólans

19. 01. 2010 Málefnaskrá 2012

Engin skólagjöld við HÍ.
Grundvallarhugsjón Röskvu er jafnrétti allra til náms. Röskva berst af heilum hug gegn skólagjöldum, þ.e. gjöld umfram raunveruleg skrásetningargjöld. Skólagjöld skerða jafnrétti til náms og skekkja samkeppnishæfni námsgreina. Hækkun innritunargjalda felur í sér leynd skólagjöld. Gegn þessu tvennu verða hagsmunasamtök stúdenta ætíð að berjast.

Aukin fjárframlög til Háskóla Íslands.
Röskva hefur skýra framtíðarsýn um öflugan ríkisháskóla sem er leiðandi á landsvísu í rannsóknum og kennslu. Til þess að Háskóli Íslands uppfylli þá sýn þarfnast hann öflugs stuðnings frá hinu opinbera. Nemandi í einkareknum skóla sem tekur námslán fyrir skólagjöldum fær meiri pening frá hinu opinbera en nemandi í HÍ. Röskva telur mikilvægt að þessi mismunur í fjárveitingu til háskóla landsins verði leiðréttur.

Röskva krefst þess að stjórnvöld borgi með öllum stúdentum Háskóla Íslands.
Fjárframlög til háskóla landsins miðast við fjölda nemenda en hafa ákveðið þak. HÍ ber að taka inn alla nemendur en einkareknir skólar geta synjað nemendum sé þakinu náð. Þetta fyrirkomulag skilar sér í því að stjórnvöld borga ekki með öllum virkum nemendum HÍ. Röskva vill að Háskólinn taki alla hæfa umsækjendur inn í skólann og fái borgað með þeim öllum.

Röskva vill að stúdentar fái fulltrúa í fjármálanefnd HÍ.
Röskvu þykir óeðlilegt að stúdentar hafi ekkert um það að segja hvernig takmörkuðum fjármunum Háskólans er varið. Stúdentar geta komið með hugmyndir um hvar skera má niður auk þess sem tryggja þarf að niðurskurðir falli ekki einhliða á nemendur. Með því að veita stúdentum málsvara í fjármálanefnd HÍ má koma í veg fyrir það.