Röskva vill hærri fæðingarstyrk.
Röskva vill sjá fæðingarstyrk til námsmanna í samræmi við framfærslutöflu LÍN. Eins og fyrirkomulagið er núna fá allir námsmenn sömu upphæð í fæðingarstyrk, óháð hjúpskaparstöðu og fjölda barna. Þetta gerir mörgum foreldrum erfitt að stunda nám á meðan námi stendur.
Röskva vill hærri mótframlög sveitarfélaga til leikskóla.
Mikilvægt er að hlúa að leikskólum, jafnt opinberum sem og þeim sem Félagsstofnun stúdenta rekur. Röskva vill að leikskólar FS fái sömu mótframlög frá sveitarfélögum og opinberir leikskólar. Röskva hafnar því að aukinn kostnaður við leikskóladvöl falli á stúdenta í formi leikskólagjalda. Leikskólar eru einn mikilvægasti hlekkurinn í grunnþjónustu samfélagsins og ber að standa vörð um þá.
Röskva vill tryggja rétt allra stúdenta til fæðingarstyrks.
Núgildandi lög um fæðingarorlof eru meingölluð varðandi rétt stúdenta. Það er ólíðandi að stúdentar fái greidd tæplega 70% af námslánum sínum í fæðingarstyrk og að í ákveðnum tilvikum fá stúdentar erlendis og nýútskrifaðir stúdentar sáralítið greitt úr fæðingarorlofssjóði. Röskvu finnst mikið jafnréttismál að allir nýbakaðir foreldrar fái fullan rétt til greiðslna úr fæðingarorlofssjóði í samræmi við atvinnuleysisbætur
Röskva vill sjá virka fjölskyldunefnd.
Röskva vill tryggja að foreldrar eigi sér virkan málsvara innan háskólans. Meginhugsjón Röskvu hefur ætíð verið jafnrétti til náms. Það að vera foreldri er fullt starf og því reynist fjölskyldufólki oft erfiðara að sækja tíma og stunda nám. Því er nauðsyn að öflugt starf í þágu þeirra fari fram innan raða Stúdentaráðs.
Röskva vill að tekið sé aukið tillit til foreldra.
- Röskva hefur lengi barist fyrir því að kennslustundum ljúki áður en leikskólar loki. Það er ótækt að foreldrar þurfi jafnvel að sleppa tímum til þess að sækja börnin sín.
- Röskva vill aukið tillit til fjölskyldufólks annaðhvort með því að afnema með öllu mætingarskyldu eftir lokun leikskóla eða að skylt sé að veita fjölskyldufólki ávallt undanþágu frá slíkri skyldu.
- Röskva vill að á háskólasvæðinu verði sett upp einföld aðstaða fyrir börn sem koma með foreldrum sínum í skólann.
- Röskva vill að kennarar veiti foreldrum forgang þegar kemur að því að velja sér tíma fyrir munnleg próf, verklega tíma, umræðutíma og fleira sem gæti verið eftir lokun leik- og grunnskóla. Auk þessa telur Röskva ólíðandi að kennslustundir, sem og próf yfir önnina, séu haldin um helgar.


