Röskva setur jafnrétti í forgang
Rauður þráður í starfi Röskvu er hugsjónin um jafnrétti allra til náms, óháð kyni, efnahag, uppruna, búsetu, fötlun, stöðu eða aðstæðum að öðru leyti. Röskva vill tryggja að hvergi sé brotið á réttindum stúdenta við Háskóla Íslands, sér í lagi þeirra sem teljast til minnihlutahópa. Þá vill Röskva vinna með og hlúa að hinum ýmsu hagsmunafélögum sem starfa innan háskólans.
Röskva kallar eftir jafnrétti kynjanna
Jafnréttismál snerta stúdenta sem og aðra þjóðfélagshópa beint. Launamunur kynjanna er viðvarandi og ótal hindranir standa í vegi fyrir jöfnum tækifærum karla og kvenna á mörgum sviðum. Staðalímyndir kynjanna gegna þarna lykilhlutverki og vill Röskva að þessum staðalímyndum sé útrýmt. Einnig vill Röskva að misrétti gegn konum sé viðurkennt sem það mannréttindabrot sem það er og að samfélagið viðurkenni jafnan rétt kynjanna til stjórnunarstaða og launa.
Röskva vill að stuðlað sé að jöfnum kynjahlutföllum í nemendahóp allra deilda Háskólans
Í nokkrum deildum Háskólans hallar verulega á annað kynið. Röskva vill að Háskólinn beiti sér fyrir því að þessi skekkja verði jöfnuð með sérstakri kynningu á þeim deildum í öllum framhaldsskólum landsins.
Röskva vill jafnari kynjaskiptingu kennara innan deilda HÍ
Raunin er sú að eftir því sem hærra er farið upp metorðstigann hallar verulega á eitt kynið, þessu vill Röskva breyta.
Röskva vill kynjafræði sem skyldufag í kennaramenntun
Röskva vill beita sér fyrir því að sett verði inn í námskrár Menntavísindasviðs kynjafræði sem skyldugrein. Menntakerfið á stóran þátt í mótun og viðhaldi staðalímynda kynjanna. Kennarar gegna miklu ábyrgðarhlutverki hvað því viðkemur og því er mikilvægt að kennarar framtíðarinnar hafi þekkingu á því sviði.
Röskva vill að samstarf við jafnréttisfulltrúa HÍ verði eflt
Við Háskóla Íslands er starfandi jafnréttisfulltrúi. Mikilvægt er að Stúdentaráð sé í góðu samstarfi við hann og nýti sér þekkingu og færni hans er kemur að jafnréttismálum.
Röskva vill að jafnréttisáætlun Háskóla Íslands verði virt
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands á að tryggja raunverulegt jafnrétti innan skólans. Deildum og stjórnsýslusviðum er ætlað að framfylgja áætluninni en hinsvegar hafa verið vandkvæði á því að henni sé fylgt eftir. Röskva krefst þess að slík vinnubrögð líðist ekki og að jafnréttisáætlunin sé virkjuð innan allra deilda.
Röskva vill að vinnu við jafnréttisáætlun SHÍ verði haldið áfram
Stúdentar eiga að vera í fararbroddi þróunar samfélagsins. Í ljósi þess er mikilvægt að Stúdentaráð sem rödd stúdenta móti sér framsækna stefnu í jafnréttismálum í hinum víðasta skilningi. Vinna hefur verið hafin við gerð jafnréttisáætlunar SHÍ og telur Röskva að nauðsynlegt sé að halda þeirri vinnu áfram.
Röskva vill að nefndir SHÍ séu ekki einkynja
Sú staða hefur komið upp að nefndir Stúdentaráðs séu einkynja. Röskva telur að mikilvægt sé að raddir kynjanna fái að heyrast í öllu starfi Stúdentaráðs og fylkingar taki mið af því í skipan nefnda.
Röskva vill efla starf hagsmunasamtaka innan Háskóla Íslands
Nauðsynlegt er að Stúdentaráð styðji við bakið á hagsmunasamtökum innan HÍ. Aðstöðuleysi er að sliga félögin og telur Röskva að mikilvægt sé að ráða bót á því. Röskva hvetur þar að auki Háskóla Íslands til þess að taka málefnum hagsmunasamtaka af mun meiri alvöru en gert hefur verið.
Röskva vinnur að málefnum hinsegin fólks
Röskva vill að hætt verði að ganga út frá því að allir séu gagnkynhneigðir. Röskva telur að nauðsynlegt sé að auka samstarf við samtök hinsegin fólks í Háskóla Íslands til þess að efla umræðu um málefni þeirra.
Röskva vill upplýstari umræðu um málefni hinsegin fólks
Röskva vill viðurkenna þær hindranir sem trans nemendur HÍ standa frammi fyrir. Röskva telur að m.a. þurfi að eyða þeim forskilningi sem miðast við tvískipt kynjakerfi. Það að notast við slíkt kerfi við gerð rannsókna veldur því að þær líta framhjá málefnum hinsegin fólks sem dregur upp skekkta mynd af samfélaginu. Menntun sem litast af tvískiptu kynjakerfi stuðlar að viðhaldi staðalímynda og fordóma.
Röskva vill bæta hag geðfatlaðra og fólks með geðraskanir
Með opinni og upplýstri umræðu vill Röskva beita sér gegn fordómum gagnvart fólki með geðraskanir jafnt innan háskólans sem utan. Þá vill Röskva einnig bæta þjónustu við aðila með geðraskanir innan háskólans meðal annars með því að bæta reglur skólans er varða geðræna röskun og próftöku.
Röskva vill tryggja að fólk með sértæka námsörðugleika fái aðstoð
Röskva vill standa vörð um aðstoð við fólk með sértæka námsörðugleika meðal annars með því að efla greiningarsjóð þess efnis sem þegar starfar. Sjóðurinn þarf að eiga fastan höfuðstól eigi hann að geta sinnt hlutverki sínu sem skyldi. Þá vill Röskva beita sér fyrir því að fordómum gagnvart stúdentum með sértæka námsörðugleika verði útrýmt með opinni og upplýstri umræðu.
Röskva vill auðvelda aðgengi fatlaðra
Röskva telur aðgengi fatlaðra við Háskóla Íslands óviðunandi. Nám við ákveðnar deildir háskólans er ómögulegt öðrum en fólki með fulla hreyfigetu. Röskva vill benda á að Háskólatorg uppfyllir ekki skilyrði er varðar jafnt aðgengi allra. Röskva vill að aðgengismál í Háskólanum verði að forgangsatriði hjá ráðamönnum Háskólans.
Röskva vill punktaletursmerkingar og leiðarlínur innan allra bygginga Háskóla Íslands
Háskólayfirvöld hafa lofað að merkja stofur og skrifstofur skólans með punktaletri og leiðarlínum. Þetta verk hefur tafist allt of lengi og krefst Röskva þess að úr því verði bætt. Geri háskólinn það ekki telur Röskva að stúdentar verði að taka málin í sínar hendur og hafa umsjón með verkinu sjálfir.
Röskva vill minna á ábyrgð kennara á öllum menntastigum
Röskva vill minna á mikilvægi þess að kennaranemar séu undirbúnir sérstaklega til að takast á við fordóma og einelti. Ennfremur ættu kennarar aldrei að tala niður til ákveðins þjóðfélagshóps eða ýta undir fordóma.
Röskva vill að allar kennslustundir séu aðgengilegar á netinu
Stúdentar hafa ekki alltaf tök á að mæta í kennslustundir. Einnig stunda yfir hundrað stúdentar nám á Laugarvatni og ættu þeir að hafa kost á sama námsframboði og aðrir stúdentar við Háskóla Íslands. Röskva vill beita sér fyrir því að fjarnám verði eflt og sem flestar kennslustundir verði í framtíðinni aðgengilegar á Uglunni.
Röskva vill hvetjandi aðgerðir til að auðvelda innflytjendum að sækja sér háskólamenntun
Röskva vill leita lausna til þess að innflytjendur á Íslandi sæki sér frekar háskólamenntun, t.d. með samstarfi við Menntamálaráðuneytið og framhaldsskólana við undirbúning og kynningu á háskólanámi. Röskva vill einnig að gerð verði úttekt á stöðu innflytjenda í menntakerfinu á Íslandi og því hvernig megi auðvelda aðgang þeirra að skólanum, jafnt háskólasamfélaginu og náminu sem þar er boðið upp á.


