Menntamál

20. 01. 2010 Málefnaskrá 2012

Röskva er á móti skólagjöldum

Grundvallarhugsjón Röskvu er jafnrétti allra til náms. Röskva berst af heilum hug gegn skólagjöldum vegna þess að þau skerða jafnrétti til náms og skekkja samkeppnishæfni námsgreina.

Hækkun innritunargjalda felur í sér leynd skólagjöld. Röskva telur að fjárskort skólans skuli ekki leysa með því að leita í vasa stúdenta.

 

Röskva hafnar fjöldatakmörkunum við Háskóla Íslands

Undanfarið hafa inntökupróf  við Háskólann verið mikið í umræðunni. Röskva hafnar slíkum hugmyndum. Krafa Röskvu er að ríkið standi við skyldur sínar og fari í nauðsynlega endurskipulagningu á menntakerfinu með hagsmuni opinberra háskóla að leiðarljósi svo að jafnrétti til náms verði ekki stefnt í hættu. Það er ólíðandi að ríkið greiði ekki að fullu fyrir alla nemendur sem stunda nám við Háskóla Íslands og krefst Röskva þess að aukið fjármagn verði lagt fram til Háskólans. Aðeins þannig getum við útilokað fjöldatakmarkanir og staðið að fullu vörð um jafnrétti til náms.

Háskólaráð hefur annars vegar rætt um inntökupróf og hins vegar takmörkun sem byggir á framvindukröfu. Af tvennu illu telur Röskva að mun sanngjarnari og minna íþyngjandi leið sem síður myndi ógna jafnrétti allra til háskólanáms væri ákveðin framvindukrafa náms við Háskóla Íslands. Þar fengju stúdentar tækifæri til að standast kröfur deildarinnar, í stað inngangs- og fjöldatakmarkana. Þannig fá allir jafnt tækifæri til að hefja nám

Upptökupróf

Röskva vill að sérstök upptökupróf verði gerð að meginreglu á ný. Slík próf skal halda sem skemmst frá lokum próftímabils en þó þannig að stúdentar hafi nægan tíma til undirbúnings. Það er eðlileg krafa að deildir Háskólans hafi skýra og samræmda stefnu um fyrirkomulag upptökuprófa og að ljóst sé strax frá upphafi misseris hvernig þeim verði háttað.

Fjölbreyttara námsmat innan HÍ

Röskva hvetur Háskóla Íslands til að skoða nýjar leiðir í námsmati. Til að bæta gæði náms við HÍ þarf meðal annars að endurskoða hvernig nám er metið. Röskva leggur til að settur verði af stað starfshópur sem kannar fjölbreyttari námsmatsaðferðir og skoða ætti hvort mögulegt sé að leggja niður próf í vissum áföngum. Litið verði sérstaklega til alþjóðlegra háskóla í fremstu röð sem hafa tekið upp annars konar námsmat. Í þessu samhengi má nefna Harvard sem stefnir hröðum skrefum í þá átt að leggja niður öll lokapróf. Röskva býst við að sá lærdómur sem komi úr þessari vinnu tryggi að Háskóli Íslands sé framsækinn háskóli og samkeppnishæfur á alþjóðagrundvelli.

Röskva vill aukið framboð fjarnáms

Lengi hefur tíðkast að taka upp einstaka fyrirlestra og námsskeið við Háskóla Íslands, bæði hljóðritanir og myndupptökur. Þar sem tæknin er nú þegar til staðar telur Röskva í hæsta máta óeðlilegt að ekki sé notast við hana í auknum mæli til að efla fjarnám við Háskólann. Röskva vill því að þeir fyrirlestrar sem henta til upptöku séu teknir upp og að leitað sé leiða til að auka framboð fjarnáms.

Röskva vill reglur um skil einkunna fyrir ritgerðir, skyndipróf og heimapróf

Engar reglur eru gildandi um einkunnaskil fyrir ritgerðir, skyndipróf og heimapróf.

Miðað við þann árangur sem hefur náðst varðandi einkunnaskil í lokaprófum á að vera hægt að stórbæta þettameð skilvirkum reglum og eftirfylgni.

Röskva vill að skipuð verði fagleg nefnd um sumarannir

Ekki var staðið sem skyldi að þeim sumarönnum sem boðið var upp á við Háskóla Íslands undanfarin ár. Námsframboði var mjög áfátt og endanleg ákvörðun um framkvæmdina var ekki tekin fyrr en nokkrum vikum áður en námið átti að hefjast.

Mikilvægt er að Háskóli Íslands skipi faglega nefnd til að kanna möguleika og leiðir til að koma á sumarönnum við Háskóla Íslands og tryggja þannig að staðið verður betur að þeim í framtíðinni.

Röskva vill meira samstarf stúdenta við stjórnsýslu Háskóla Íslands

Innan allra fræðasviða háskólans ættu að tíðkast reglulegir fundir milli fulltrúa nemenda og forseta fræðasviðs. Með nánara samstarfi og meiri samskiptum stúdenta við stjórnsýslu Háskólans er hægt að auka vægi og áhrif stúdenta í ákvarðanatöku. Röskva vill sjá virka fulltrúa nemenda á öllum deildarfundum innan Háskólans.

Röskva vill kennslunefnd í hverja deild

Röskva krefst þess að stefnu Háskólans í kennslumálum verði framfylgt, en hún gerir m.a. ráð fyrir því að kennslunefndir, með virkri þátttöku stúdenta, verði stofnaðar í hverri deild fyrir sig. Þessar nefndir eiga að hafa það verkefni að bæta kennsluhætti í viðkomandi deild, vinna að námskeiðahaldi fyrir kennara, efla umræðu um gæði kennslu o.fl. Háskólinn þarf að leggja meiri áherslu og fjármagn í kennslumál.

 

Röskva vill faglegri vinnubrögð við gæðaeftirlit:

Betri eftirfylgni kennslukannana:

Deildarfulltrúar stúdenta eiga rétt á aðgangi að niðurstöðum kennslukannana. Röskva vill tryggja, með skýrum reglum og verkferlum, að niðurstöður kennslukönnunar nýtist til þess að bæta nám við Háskólann.

Markvissari innleiðingu gæðaviðmiða Bologna-ferlisins:

Röskva vill taka virkan þátt í að móta hina samevrópsku menntastefnu, m.a. með skilvirkari innleiðingu Bologna-ferlisins.

Bologna-ferlið miðar að samræmingu náms í Evrópu, þ.e. að gera Evrópu að einu hágæða háskólasvæði. Háskólinn þarf að ganga hraðar og skilvirkar til verks til þess að innleiða ferlið.

Röskva vill skylda alla kennara á námskeið í kennsluháttum

Háskólinn býður upp á námskeið í kennsluháttum og –aðferðum og einnig svokallað Mentor kerfi fyrir nýja kennara. Röskva fagnar þessu en vill að þetta verði gert að skilyrði við upphaf starfa við Háskólann sem og að reyndari kennarar sæki námskeið í kennsluháttum á nokkurra ára fresti. Sömuleiðis ætti það að vera skylda að starfsmenn Kennslumiðstöðvar HÍ sitji tíma hjá öllum kennurum og gefi þeim umsögn og ráðleggingar. Þegar á við gætu hulduheimsóknir verið góður kostur.

Röskva vill samræmt vinnuálag nemenda að baki hverri einingu

Flestir stúdentar vita að sú vinna sem liggur að baki hverri einingu er mismikil, þrátt fyrir að Háskólinn eigi að fara eftir alþjóðlegum stöðlum.

Innleiðing ECTS eininga í Háskólann var gölluð að þessu leyti, þar sem ekki fór fram nægileg endurskoðun á vinnuálagi í hverju námskeiði. Háskólinn á að gera miklar kröfur til stúdenta, en þær verða líka að vera samræmdar. Röskva krefst að farið verði eftir reglum um samræmt vinnuálag.

Röskva krefst þess að allir stúdentar fái nægt upplestrarfrí.

Röskva vill að sett verði í reglur Háskólans að ekki megi halda fyrirlestra fimm dögum fyrir prófatímabil.