Samgöngu- og umhverfismál

20. 01. 2010 Málefnaskrá 2012

Ódýrt í strætó fyrir alla stúdenta.

Röskva vill stuðla að lækkun fargjalda í strætó fyrir stúdenta með það að langtímamarkmiði að stúdentar geti nýtt sér almenningssamgöngur að kostnaðarlausu. Röskva vill að hvatt sé til umhverfisvænna samgangna og minnkun bílanotkunar.  Forsenda þess að umhverfisvænni almenningssamgöngur séu fyrsti kostur stúdenta er að þær séu hagstæður og góður fararmáti. Því er mikilvægt er að SHÍ beiti sér fyrir betri og ódýrari þjónustu Strætó.

Grænn Háskóli.

Röskva vill að Háskóli Íslands sé í fararbroddi á öllum sviðum umhverfismála. Háskólinn á að hvetja til umhverfisverndar og umhverfisvænna lifnaðarhátta, til dæmis með auknum afslætti á kaffi í fjölnota máli og að vörur í Hámu séu litamerktar eftir því í hvaða endurvinnslutunnu þær fara. Röskva fagnar nýkominni áherslu Háskóla Íslands á endurvinnslu og vill sjá enn frekari þróun á því sviði. Röskva vill að Háskóli Íslands setji sér það markmið að hljóta viðurkennda, alþjóðlega umhverfisvottun, á borð við Grænfánann.

Röskva vill að möguleiki á rafvæðingu námsgagna sé kannaður innan raða háskólans.

Efling umhverfisvitundar.

Leita þarf nýrra og áhugaverðra leiða til eflingar umhverfisvitundar, sérstaklega meðal nemenda. Efla má umhverfisvitund með því að auka umræðu meðal háskólafólks, t.d. með fyrirlestrum, málþingum, rannsóknarverkefnum, blaðaútgáfum og styrkveitingum.