Aðalfundur Röskvu 2010

10. 03. 2010 Myndafréttir

Röskva heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 11. mars næstkomandi kl. 17:30 í stofu HT101 (hringleikasalnum á Háskólatorgi). Á dagskrá eru meðal annars kjör nýrrar stjórnar félagsins þ.m.t. formanns, ritara, gjaldkera, ritstjóra og sex meðstjórnenda. Nánari upplýsingar má finna í lögum félagsins eða með því að senda póst á [email protected]

Allt félagshyggjufólk innan veggja Háskóla Íslands er hvatt til þess að mæta!

Staður: Stofa HT101 Háskólatorgi

Stund: Fimmtudagurinn 11. Mars – kl. 17:30

Stjórn Röskvu